Uppskeruhátíð Sumarlesturs 2010
Þátttakendur í lestrinum sumarið 2010 voru 16 börn á aldrinum 6 til 10 ára. Haldin var uppskeruhátíð og mættu 14 barnanna á hana ásamt 8 foreldrum.
Eftirvæntingin skein úr andlitum barnanna enda verðlaun, viðurkenningar, liðakeppni í púsli og upplestrar í boði. Allir drógu lukkumiða og fengu fallega hluti í verðlaun. Börnin hönnuðu sína eigin bókarkápu og eru teikningarnar til sýnis í barnadeild safnsins til 22. október.
Það voru lesnar 23.636 blaðsíður og fannst börnum það há tala og voru stolt af eigin dugnaði.
Blaðsíðum var flett 11.818 sinnum. Samvinna hugar og handar.
Uppskeruhátíðin heppnaðist vel og ætla börnin öll að vera með næsta sumar og kynna verkefnið fyrir vinum sínum.
