Fréttir
Áhugaverðar vangaveltur
Fyrirlestrarröðin Okkar fólk hófst í gær mánudaginn 25. janúar. Baldur Böðvarsson, fv. stöðvarstjóri kynnti þar hugmyndir sínar um staðsetningu Lögbergs á Þingvöllum. Baldur rökstuddi hugmyndir sínar og síðan var boðið uppá fyrirspurnir og umræður. Góður rómur var gerður að máli Baldurs og þökkum við honum kærlega fyrir þetta framlag.
