Seltjarnarnesbær

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

Fréttir

Gítarleikur

2.2.2010

Hinrik-1
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Það voru gítarhljómar á tónleikunum Te og tónlist á bókasfninu í gær  mánudaginn 1. febrúar. Hinrik Bjarnason lék fyrir gesti fallega gítartónlist. Á efnisskrá voru etýður eftir spænsku tónskáldin og gítarleikarana Francisco Tarrega (1852-1909) og Fernando Sor (1778-1839). Einnig lék hann Rómönsu Anon og verk eftir ítalska tónskáldið og gítarleikarann Matteo Carcassi (1792-1853), Brasilíumennina Heitor Villa-lobos (1887-1959) og João Pernambuco (1983-1947). Tónleikarnir voru ljúfir eins og þessi efnisskrá ber með sér. Hinrik er kennari við Tónlistarskóla Seltjarnarness.     

Senda grein


Um safnið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica