Te og tónlist
Tónleikaröðin Te og tónlist hófst á nýju ári 6. febrúar - fyrsta mánudag í mánuðnum. Það voru þrjár ungar konur sem fluttu okkur jazz. Þær eru Rósa Kolbeinsdóttir sem lék á píanó, Guðrún Halla Jóhannsdóttir söng og Sigurbjörg Jósepsdóttir lét á kontrabassa.

Á efnisskrá voru jazz standardar og lög flutt í jazz búningi flest eftir bandaríska lagahöfunda. Meðal annars fluttu þær Gee baby aren't I good to you var samið 1929 af Andy Razaf (1895-1973) og Don Redman (1900-1964), Let's do it eftir Cole Porter (1891 – 1964), Georgia on my mind frá 1930 samið af Hoagy Carmichael (1899-1981) við texta Stuart Gorrell (1901–1963) og er þetta þekktasti texti Gorell, Is you is or is you aren't my baby eftir Louis Jordan (1908-1975) og Billy Austin (1896-1964) og Cry me a river eftir Arthur Hamilton (f. 1926) og var þetta lag upphaflega samið fyrir Ellu Fitzgerald til að syngja í kvikmynd.
Einnig fluttu þær Höstvisa eftir Erna Tauro og Tove Jansson (1914-2001).
Fyrir hönd tónlistarskólans hafði Guðjón Þorláksson kontrabassaleikari umsjón með tónleikunum.
Þetta voru ljúfir og skemmtilegir tónleikar og þökkum við flytjendunum og Tónlistarskólanum kærlega fyrir.
