Sumarlestur
Sumarlestur fyrir grunnskólabörn verður á bókasafninu í sumar. Verkefnið byrjar 21. maí og því lýkur 3. september. Allt sem þarf að gera er að skrá lesnar bækur í lestrardagbók sem þátttakendur fá á bókasafninu. Þar á að tiltaka titil bókar, höfund, dagsetningu, blaðsíðufjölda og skrifa stutta umsögn um bókina.
Broskarl og stimpil bókasafnsins fáið þið svo í dagbókina eftir hverja lesna bók.
Hægt verður að að byrja hvenær sem er að lesa.
Þið skilið svo lestrardagbókinni á bókasafnið ekki síðar en 3. september. Sumarlestur hefur það að markmiði að viðhalda og auka lestrarfærni barna. Hann er fyrir alla krakka, en hentar sérstaklega vel þeim sem eru að læra að lesa.
Uppskeruhátíð verður haldin í september.
Verðlaun, lukkumiðar, upplestrar, veitingar og fleira skemmtilegt verður á dagskrá.
