Sögustundir
Reglulega er boðið uppá sögustundir fyrir yngstu börnin. Í byrjun árs 2010 var tímanum breytt og verða sögustundir nú fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 17:30. Sögustundir fram á vor:
Miðvikudagur 3.2. Lesin sagan: Stóri ísbjörn / Litli ísbjörn eftir David Bedford og Jane Chapman.
Miðvikudagur 3.3. Lesin sagan: Ég vil fisk eftir Áslaugu Jónsdóttur
Miðvikudagur 7.4. Lesin sagan: Skrímsli í heimsókn eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal
Miðvikudagur 5.5. Lesin sagan: Drekinn með rauðu augun eftir Astrid Lindgren og Ilon Wikland
