Seltjarnarnesbær
Útlánareglur

Útlánareglur

Megnið af safnkosti Bókasafns Seltjarnarness er til almennra
útlána að undanskildum handbókum og hluta tímarita.

-Sýna þarf persónuskilríki við kaup á skírteini.
-Lánþegaskírteini kosta 1300 krónur.
-Lánþegi skal framvísa skírteini sínu í hvert sinn
sem safnefni er fengið að láni.

Bókasafnsskírteinin gilda einnig í Borgarbókasafni og
Bókasafni Mosfellsbæjar og má skila safnefni í þeim söfnum
.

Skírteinin gilda í 1 ár.
Endurnýja þarf lánþegaskírteini einu sinni á ári.
Yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust.
Yngri en 12 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns,
en ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu bókasafnsins.
Skírteinishafi (eða ábyrgðarmaður hans) ber ábyrgð á öllum
gögnum sem skráð eru á hans nafn.

Lánstími safnefnis er yfirleitt 30 dagar, nema annars sé getið.
Geisladiskar með tónlistarefni eru yfirleitt lánaðir í 14 daga.
Myndbönd eru lánuð í 2 daga, fræðslumyndir í 7 daga.
Fyrir hvern umfram dag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.
Endurnýja má lán 2svar sinnum, ef engin pöntun liggur fyrir.
Hægt er að endurnýja í safninu, á gegnir.is eða í gegnum síma.
Hægt er að panta efni, sem er í útláni. Athugið að þó er ekki hægt að panta nýtt efni, ,,jólabækur" á tímabilinu 15. október til 1. mars. Er það gert til að auka líkurnar á að spennandi efni bíði þín í hillunni þegar þú heimsækir safnið.

Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann
andvirði þess.
Lánþega ber að tilkynna til bókasafnsins ef skírteini glatast.
Ef skírteini glatast kostar 100 kr. að fá nýtt.

Senda grein


Þjónusta

Þetta vefsvæði byggir á Eplica