Kjör íþróttamanns og konu Seltjarnarness 2016 fer fram þriðjudaginn 17. janúar 2017 í Félagsheimili Seltjarnarness kl. 17:00
Öllum bæjarbúum á Seltjarnarnesi er boðið að koma og fylgjast með kjörinu. ÍTS óskar eftir ábendingum frá íbúum á Seltjarnarnesi um íþróttamann eða konu sem sýnt hefur framúrskarandi árangur í íþróttagrein sem fellur undir starfsemi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.
Það er síðan í höndum fulltrúa Íþrótta- og tómstundanefndar að ákveða hverjir það eru sem hljóta tilnefningar.
Upplýsingar um þann sem er tilnefndur til Íþróttamanns Seltjarnarness þurfa að vera ítarlegar og það helsta sem þarf að koma fram er:
- Nafn, kennitala, heimili og sími.
- Hversu lengi viðkomandi hefur stundað íþróttina/ir.
- Ástundun og hversu mikið er æft.
- Titlar eða árangur.
- Félagslega hliðin.
Annað sem þið viljið koma á framfæri. Athuga að aðeins þeir sem eiga lögheimili á Seltjarnarnesi eiga möguleika á að vera tilnefndir, óháð hvar íþróttin er stunduð.
Allar upplýsingar eða ábendingar skulu berast á tölvupóstfangið haukur@seltjarnarnes.is fyrir 5. janúar 2017.