Tilkynningar
Alþingiskosningar 28. október 2017
Alþingiskosningar 28. október 2017
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi, almenningi til sýnis frá 18. október á bæjarskrifstofum
Seltjarnarness Austurströnd 2, í þjónustuveri á 1. hæð, á opnunartíma skrifstofunnar.
Kosning utan kjörfundar er í Smáralind, Kópavogi. Atkæðagreiðslan fer fram vestanmegin á 2. hæð í Smáralind. Þar verður opið alla daga milli kl. 10 og 22.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 28. október 2017, er í Valhúsaskóla við Skólabraut
og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
www.kosning.is - Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er með ýmsar upplýsingar um kosningarnar t.d. uppflettingu á vefnum „hvar ertu á kjörskrá?“.
Munið eftir persónuskilríkjum.
Aðsetur kjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla.
Fyrir hönd. Kjörstjórnar
Pétur Kjartansson, formaður
