Innritun fyrir skólaárið 2018-2019
Innritun barna sem fædd eru árið 2012 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2018 fer fram dagana 22.-26. janúar næstkomandi.
Sömu daga fer fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Seltjarnarness eða koma úr sjálfstætt starfandi skólum. Innritun í Grunnskóla Seltjarnarness fer fram í gegnum vefgátt bæjarins, Mínar síður, á slóðinni www.seltjarnarnes.is
Nánari upplýsingar og aðstoð veitir starfsfólk Grunnskóla Seltjarnarness í síma 5959200. Fyrirspurnir er einnig hægt að senda á netfangið grunnskoli@grunnskoli.is