Bakkahverfi. Grenndarkynning á deiliskipulagsbreytingu fyrir Melabraut 12 – ath breytt auglýsing.
Á 67. fundi Skipulags- og umferðarnefndar hinn 30. nóvember 2017 var samþykkt að grenndarkynna erindi um deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Melabraut 12 í Bakkahverfi á Seltjarnarnesi. Breyting skilmála fyrir lóðina er sýnd á meðfylgjandi tillögu og er að öllu leyti vísað nánar til hennar um fyrirhugaðar breytinga, en m.a. felst breytingin í eftirfarandi:
Rífa núverandi hús og byggja í staðinn hús með 4 íbúðum.
- Reisa nýbyggingu allt að 3 hæðum, þar af skal efsta hæð skal vera inndregin frá götu um a.m.k. 4 metra. Gera má kjallara undir húsinu fyrir geymslur og stoðrými, að öllu leyti neðanjarðar.
- Gert er ráð fyrir 4 bílastæðum á lóðinni, einu stæði pr. íbúð.
- Auka hámarks byggingarmagn á lóð úr 324,4 m2 í 527 m2.
- Auka hámarks nýtingarhlutfall úr 0,40 í 0,65.
Skipulags- og umferðarnefnd á Seltjarnarnesi grenndarkynnir hér með erindið fyrir eigendum fasteigna í nágrenni í samræmi við samþykkt þessa og með vísan til 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meðfylgjandi tillaga um deiliskipulagsbreytingu, er kynnt á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar og er til sýnis á 2. hæð bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar að Austurströnd 2.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna. Athugasemdum skal skila skriflega til þjónustuvers Seltjarnarnesbæjar að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi eða á netfangið postur@seltjarnarnes.is, eigi síðar en 23. febrúar 2018.
Vinsamlegast athugið að ekki er um sama uppdrátt að ræða og kynntur var með tilkynningu 9. janúar 2018. Frestur hefur verið framlengdur.
Breyting á deiliskipulagi Bakkahverfis vegna lóðarinnar Melabraut 12