Tilmæli til íbúa er varða flokkun og skil á plasti í ljósi COVID-19 veirunnar
Umhverfisstofnun hefur eftir samráð við sóttvarnarlækni lagt til að flokkun úrgangs með loftblæstri verði hætt tímabundið til að draga úr smithættu vegna Covid-19 veirunnar. Það þýðir að ekki má nýta vindflokkara fyrir plast í pokum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU á meðan þetta ástand varir. Um er að ræða búnað sem notaður er til að flokka plast í pokum frá heimilisúrgangi í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Íbúar Seltjarnarnesbæjar sem skila plasti í pokum með heimilissorpi eru beðnir um að skila flokkuðu plasti á grenndarstöðvar eða á endurvinnslustöðvar þar til tilkynnt verður um annað.