Leikskóli Seltjarnarness - Innritun fyrir skólaárið 2020-2021
Innritun barna fyrir skólaárið 2020-2021 fer fram í aprílmánuði nk. Til að eiga rétt á leikskóladvöl þarf barn að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Sækja skal um leikskóladvöl á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is gegnum Mínar síður.
Mikilvægt er að umsóknir berist í síðasta lagi þriðjudaginn 31. mars nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar eftir því sem leikskólapláss losnar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun veitir Sonja Jónasdóttir í síma 5959287. Fyrirspurnir má einnig senda á sonja@seltjarnarnes.is og mailto:leikskoli@nesid.is
Upplýsingar um Leikskóla Seltjarnarness: http://leikskoli.seltjarnarnes.is/
www.seltjarnarnes.is/thjonusta/menntun/leikskolar/
http://www.seltjarnarnes.is/thjonusta/menntun/leikskolar/innritunarreglur/
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar