Tilkynningar
Vatnsveita Seltjarnarness tilkynnir lokun kalda vatnsins á Fornuströnd 1-14 fimmtudaginn 4. júní
Íbúar á Fornuströnd vinsamlega athugið! Á morgun fimmtudaginn 4. júní verður lokað fyrir kalda vatnið vegna viðgerða frá klukkan 10.00 og fram eftir degi. Lokunin nær til allra húsa á Fornuströnd 1-14.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Vatnsveita Seltjarnarness