Tilkynningar
Vatnsveita Seltjarnarness tilkynnir lokun kalda vatnsins á Bakkavör, Melabraut og Valhúsabraut þriðjudaginn 8. júní
Íbúar á Bakkavör, Melabraut og Valhúsabraut vinsamlegast athugið!
Þriðjudaginn 8. júní verður lokað fyrir kalda vatnið vegna viðgerða frá kl. 9 og fram eftir degi. Lokunin nær til eftirfarandi húsa:
Bakkavör 2 – 44
Valhúsabraut 1, 3, 5, 7
Melabraut 1 og 2
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Vatnsveita Seltjarnarness
S: 5959 100