Hitaveita Seltjarnarness tilkynnir lokun á heitu vatni á Kirkjubraut og Skólabraut föstudaginn 17. september
Íbúar á Kirkjubraut og Skólabraut vinsamlegast athugið!
Föstudaginn 17. september verður lokað fyrir heita vatnið vegna viðgerða frá kl. 8:30 og fram eftir degi. Lokunin nær til eftirfarandi húsa:
Kirkjubraut 1, 3, 5, 7, 9, 11, 13, 15, 17, 19, 21
Skólabraut (öll hús)
Heilsugæsla
Hluti af íþróttahúsi
Tónlistarskóli
Valhúsaskóli
Vallarhús
Vestari hluti Mýrarhúsaskóla
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness
S: 5959 100