Tilkynningar
Hitaveita Seltjarnarness tilkynnir lokun á heitu vatni við Nesveg, Tjarnarból og Tjarnarstíg þriðjudaginn 12. október
UPPFÆRT 12.10.2021:
Vegna heitavatnsviðgerða í Tjarnarbóli 2-4 og 10-12 skrúfaðist óvænt líka fyrir heita vatnið í Tjarnarbóli 6-8 vegna galla í lagnateikningum. Unnið er hörðum höndum að viðgerðum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Íbúar við Nesveg, Tjarnarból og Tjarnarstíg vinsamlegast athugið!
Á morgun, þriðjudaginn 12. október verður lokað fyrir heita vatnið vegna viðgerða frá kl. 09:00 og fram eftir degi. Lokunin nær til eftirfarandi húsa:
Nesvegur 100, 101, 102, 104 og öll hús frá 107 til og með 125
Tjarnarból 2, 4, 10, 12
Tjarnarstígur 16, 20, 22, 24, 26, 28, 30
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness
S: 5959 100