Tilkynningar
Hitaveita Seltjarnarness tilkynnir lokun á heitu vatni á Skerjabraut, Lambastaðabraut, Tjarnarbóli, Tjarnarstíg og Nesvegi þann 30. mars
Íbúar við Skerjabraut, Lambastaðabraut, Tjarnarból, Tjarnarstíg og Nesveg vinsamlegast athugið!
Á morgun, miðvikudaginn 30. mars, verður lokað fyrir heita vatnið vegna viðgerða frá kl. 9 og fram eftir degi.
Lokunin nær til eftirfarandi húsa:
- Skerjabraut 3A, 5, 5A, 7, 7A
- Tjarnarból (öll hús)
- Lambastaðabraut 9, 10, 11, 12, og 14
- Tjarnarstígur (öll hús)
- Nesvegur 100, 101, 102, 104, 107, 109, 111, 113, 117, 119, 121, 123 og 125
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness
