Tilkynning um lokun fyrir umferð við Valhúsaskóla
Frá og með deginum í dag, 12. nóvember, verður lokað fyrir akstursleið um skólalóð Valhúsaskóla með hliði við enda Skólabrautar, þannig að aðeins verður hægt að komast að bílastæði skólans frá Suðurströnd.
Er þetta liður í að auka öryggi skólabarna gagnvart umferð bíla og í samræmi við umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar. Lokað verður ár hvert á starfstíma skólans.
Umhverfissvið, Gísli Hermannsson sviðstjóri.