Tilkynningar
Íbúafundur með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Boðað er til fundar með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í Hátíðarsal Gróttu í Íþróttamiðstöðinni við Suðurströnd þann 24. nóvember kl. 17:30.
Fulltrúar lögreglunnar fara yfir stöðu mála og þróun brota á tilteknum svæðum og svara fyrirspurnum fundarmanna.
Á þessum vettvangi gefst gott tækifæri til að koma spurningum og ábendingum á framfæri við lögregluna.
Á íbúafundinn mæta helstu stjórnendur lögreglunnar á svæðinu, auk fulltrúa frá yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Allir velkomnir, heitt á könnunni
