Forsetakosningar 25. júní 2016
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut.
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi, almenningi til sýnis frá 15. júní, á bæjarskrifstofum Seltjarnarness Austurströnd 2, í þjónustuveri á 1. hæð, á opnunartíma skrifstofunnar
Kosning utan kjörfundar til kjördags er í Perlunni í Öskjuhlíð alla daga frá 9. júní kl. 10:00 til kl. 22:00 . Þó verður lokað föstudaginn 17. júní.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 25. júní 2016, er í Valhúsaskóla við Skólabraut og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
www.kosning.is - Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er með ýmsar upplýsingar um kosningarnar t.d. uppflettingu á vefnum „hvar á ég að kjósa?“
Munið eftir persónuskilríkjum.
Aðsetur kjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla.
F.h. Kjörstjórnar
Pétur Kjartansson, formaður