Tilkynningar
Alþingiskosningar 29. október 2016
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09.00 til kl. 22.00 íValhúsaskóla við Skólabraut
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi, almenningi til sýnis frá 19. október á bæjarskrifstofum
Seltjarnarness Austurströnd 2, í þjónustuveri á 1. hæð, á opnunartíma skrifstofunnar.
Kosning utan kjörfundar er í Perluna í Öskjuhlíð. Þar verður opið alla daga milli kl. 10.00 til kl. 22.00, til kjördags.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 29. október 2016, er í Valhúsaskóla við Skólabraut og hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00.
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er með ýmsar upplýsingar um kosningarnar t.d. uppflettingu á vefnum „hvar á ég að kjósa?“.
Munið eftir persónuskilríkjum.
Aðsetur kjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla.
F.h. Kjörstjórnar
Pétur Kjartansson, formaður