Sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og söfn loka á miðnætti 23. mars vegna hertari reglna um samkomur. English below
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.
Þessi fyrirmæli hafa áhrif á þjónustu sveitarfélaga:
- Öllum sundlaugum, íþróttamiðstöðvum, söfnum og bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað frá miðnætti 23. mars. Ekki verða lagðar sektir á safnkost bókasafnsins á tímabilinu.
- Skólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börn sín í skólann þurfa að tilkynna það líkt og um skólaleyfi væri að ræða og taka um leið yfir ábyrgð á heimanámi barna sinna.
- Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.