Verkfalli Eflingar frestað - Skólahald í Grunnskóla Seltjarnarness hefst fimmtudaginn 26. mars skv. skipulagi vegna samkomubanns. School starts again on Thursday!
Verkfalli Eflingar hefur verið frestað frá miðnætti í kvöld. Ræstingafólk skólans mun því mæta til vinnu í fyrramálið og þrífa skólann hátt og lágt. Þar sem að ekki hefur verið þrifið í nokkuð langan tíma og í ljósi aukinna krafna til þrifa og sótthreinsunar verður morgundagurinn notaður til þess að gera húsnæðið tilbúið til að taka á móti nemendum.Skjólið fyrir 1.-2. bekk mun fara af stað á morgun miðvikudag frá kl. 11:00 - 15:00. Nemendur sem munu nýta sér þessa þjónustu verða í sínum heimastofum og starfsfólk Skjólsins kemur þangað
Foreldrar sem ætla ekki að senda börn sín í skólann og/eða nýta þjónustu Skjólsins eru beðnir um að láta skrifstofu skólans vita.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að koma ekki inn í skólann heldur fylgja börnum sínum að inngangi og gefa sig fram við starfsmann í anddyri þegar barn er sótt í lok dag.