Vinna við fræsingu og malbikun á Lindarbrautinni að hefjast
31.8.2020
Vakin er athygli á því að nú eru að hefjast gatnagerðaframkvæmdir á Lindarbrautinni en hún verður fræst þriðjudag og miðvikudag 1. og 2. september nk. Eftir fræsingu þarf að gæta sín á hvössum brúnum. Lindarbrautin verður svo malbikuð eins fljótt og auður er en það fer eftir veðri.
Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem mun fela í sér tafir og lokanir á bílaumferð til lengri eða skemmri tíma á mismunandi stöðum á Lindarbrautinni og eru íbúar í nærliggjandi húsum og götum beðnir um að sýna varkárni, tillitsemi og þolinmæði sem og að gera viðeigandi ráðstafanir sé hætta á að bílar lokist tímabundið inni. Óheimilt verður að leggja bílum meðfram gangstétt á Lindarbrautinni á meðan á framkvæmdartímanum stendur.
Nánari upplýsingar verða tilkynntar eftir því sem verkinu vindur fram og þurfa þykir.