Gott gengi liðs Selsins í Legó hönnunarkeppninni
Legó hönnunarkeppnin, "First Lego League" var haldin laugardaginn 10. nóvember í Öskju, húsi Háskóla Íslands.
Tuttugu lið víðsvegar af landinu tóku þátt og þar á meðal lið frá Selinu á Seltjarnarnesi að nafni "Þrumufleygur", en það voru þeir Bergur Þórisson, Jón Sigurðsson, Arnar Steinn Þorsteinsson, Björn Orri Sæmundsson og Haukur Óskar Þorgeirsson sem skipuðu það lið.
Þrumufleygur sigruðu þrautakeppnina með miklum glæsibrag en keppt var í 6 flokkum. Sjá nánar á síðu Grunnskóla Seltjarnarness og síðu First Lego Lague á Íslandi