Íþrótta- og tómstundaþing á Seltjarnarnesi
19.2.2014
Íþrótta- og tómstundaráð Seltjarnarness (ÍTS) boðar til þings laugardaginn 1. mars næstkomandi um íþrótta- og tómstundamál í bænum.
Það er hlutverk ÍTS að hlúa að og styðja við íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga á Seltjarnarnesi, skapa rétt umhverfi fyrir afreksíþróttafólk og að almenningur finni eitthvað við sitt hæfi.
Framundan er stefnumótunarvinna á sviði íþrótta- og tómstundamála og er þetta þing fyrsta skrefið í þeirri útgáfu.
Stefnumótunin fjallar um öll málefni íþrótta- og tómstunda í víðasta skilningi og unnið verður reglubundið með verkefnið með markmiðasetningu, úrvinnslu og eftirfylgni.
ÍTS óskar eftir þátttöku allra aðildarfélaga á Seltjarnarnesi svo að sem flest sjónarmið mismunandi félaga komi fram.
Einnig er vonast til þess að foreldrar, iðkendur og aðrir íbúar, sem áhuga hafa á íþrótta- og tómstundamálum og vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri mæti til þess að hafa áhrif á stefnumótunina.
Þingið verður haldið í Valhúsaskóla og hefst kl. 9 og stendur til kl. 12.
Boðið verður uppá morgunkaffi kl. 8:30.
Barnagæsla er í boði meðan á þinginu stendur.
Fundarstjórn verður í höndum Gylfa Dalmanns Aðalsteinssonar