Frítt sundkort á Seltjarnarnesi
2.6.2014
Í morgun kynnti Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness nemendum í 10. bekk Valhúsaskóla Hitaveitu Seltjarnarness. Borholurnar við Snoppu og Bygggarða voru skoðaðar og þaðan lá leið að hitaveitustöðinni að Lindarbraut þar sem boðið var upp á veitingar.
Að því loknu afhenti Hitaveita Seltjarnarness öllum 10. bekkjar nemum árskort í sund, sem á eflaust eftir að koma sér vel. Þess má geta að efnasamsetning heita vatnsins á Seltjarnarnesi þykir alveg einstök og hefur verið líkt við þá sem finna má í heilsuböðum víða um heim.
Það eru ekki allir íbúar höfuðborgarsvæðisins sem gera sér grein fyrir því að Seltjarnarnesbær reki eigin hitaveitu. Hún hefur verið

starfrækt í rúm 40 ár eða allt frá árinu 1972 og unnið heitt vatn á eigin landi á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt. Því er ekki verið að ganga á auðlindina og mun hún nýtast íbúum Seltjarnarness á komandi áratugum. Af mörgum eru þessi náttúrugæði talin vera gullnáma bæjarfélagsins.