Seltjarnarnesbær
Fréttir og útgefið efni

Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

17.05.2012, kl. 14:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Dagur eldri borgara - uppstigningardagur

Dagur eldri borgara verður haldinn hátíðlegur í Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 17. maí – uppstigningardag kl. 14. Messa með þátttöku sönghóps eldri borgara á Seltjarnarnesi undir stjórn Ingu Bjargar Stefánsdóttur.
Sóknarprestur þjónar ásamt organista kirkjunnar.
Kristín Hannesdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara á Seltjarnarnesi flytur hugleiðingu.
Kaffiveitingar eftir messu. Lesa meira
 

17.05.2012 - 19.05.2012, kl. 14:00 - 18:00 Seltjarnarnesbær Handverkssýning eldri borgara

Handverkssýning eldri borgara á Seltjarnarnesi opnar fimmtudaginn 17. maí n.k. í Félagsaðstöðunni að Skólabraut 3-5.

Lesa meira
 

19.05.2012, kl. 9:30 - 23:30 Seltjarnarnesbær Sumarferð eldri borgara til Vestmannaeyja

Sumarferð eldri borgara til Vestmannaeyja verður farin 19. júní 2012 Lagt af stað með rútu frá Félagsaðstöðunni Skólabraut kl. 9:30. Lesa meira
 

19.05.2012, kl. 13:00 - 17:00 Seltjarnarnesbær Dagur Náttúrugripasafnsins - opið hús og fuglaskoðun

 

Dagur Náttúrugripasafnsins er að þessu sinni 19. maí.
Í tilefni af 30 ára afmæli Náttúrugripasafnsins verður safnið í Valhúsaskóla og á bókasafninu opið almenningi laugardaginn 19. maí milli 13:00-17:00.
Í safninu eru einstæðir gripir sem áhugavert er að skoða og um að gera að nýta tækifærið og skoða safnið.

Sýnd verður myndin Lífríki í landi Seltjarnarness sem Kvik hf. kvikmyndagerð vann.

Fuglaskoðunarferð undir leiðsögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings. Lagt verður af stað frá Valhúsaskóla kl. 14:00.

Án forskriftar - málverkasýning Sigurðar K. Árnasonar sem sett var upp á Bókasafni Seltjarnarness í tilefni afmælis Náttúrugripasafnsins verður opin laugardaginn 19. maí frá kl. 13:00-17:00 og síðan á afgreiðslutíma bókasafnsins.

Allir velkomnir

 

 

Lesa meira
 

20.05.2012, kl. 11:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Dagur Bjarna Pálssonar, landlæknis

Dagur Bjarna Pálssonar markar lok heilsueflingarátaksins sem hefur verið mánaðarlega í Seltjarnarneskirkju á liðnum vetri.
Starfsfólk heilbrigðisstétta les ritningarlestra. Haraldur Jóhannsson, yfirlæknir á Tryggingastofnun ríkisins, flytur hugleiðingu.
Sóknarprestur og organisti kirkjunnar þjóna ásamt félögum úr Kammerkórnum.
Sýning í forkirkju á munum frá Lækningaminjasafninu í Nesi.
Veitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn. Lesa meira
 

21.06.2012 Seltjarnarnesbær Menningarnefnd: Jónsmessuganga

Árleg Jónsmessuganga menningarefndar verður fimmtudaginn 21. júní - leiðsögn, hressing og varðeldur - takið kvöldið frá. Nánari dagskrá kemur síðar. Lesa meira
 



Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 1 Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 2

Þetta vefsvæði byggir á Eplica