Viðburðir
| 1 mar. 2010 | 2 mar. 2010 »
Bókasafn Seltjarnarness: Te og tónlist
Te og tónlist er í samstarfi við Tónlistarskóla
Te og tónlist tónleikar eru mánudaginn 1. mars kl. 17:30. Þá leikur Jón Guðmundsson á þverflautu við píanóundirleik Aðalheiðar Eggertsdóttur. Jón hefur kennt flautuleik við Tónlistarskóla Seltjarnarness síðan 2004, en kenndi þar áður á Egilsstöðum. Hann stundaði nám í flautuleik hjá Jóni H. Sigurbjörnssyni, Bernharði Wilkinson og Hallfríði Ólafsdóttur. Aðalheiður hefur starfað við Tónlistarskóla Seltjarnarness frá 1995 og er nú deildarstjóri píanódeildar skólans. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1991 og stundaði síðar nám við Tónlistarskólann í Kaupmannahöfn 1993-1994.
Te og tónlist eru um hálftíma tónleikar - þeir eru hugsaðir þannig að gestir geti komið við á safninu og notið ljúfra tóna á leiðinni heim.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni bókasafnsins og Tónlistarskóla Seltjarnarness.
Allir eru velkomnir.
Aðgangur ókeypis.
