Fréttir og útgefið efni

Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

04.03.2012, kl. 9:45 - 10:30 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Hlátur er ekkert grín - fræðslumorgunn

Fræðslumorgunn verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 4. mars kl. 9.45-10.30.

Hlátur er ekkert grín.
Auðbjörg Reynisdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Lesa meira
 

04.03.2012, kl. 11:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðsdegi

Guðsþjónusta verður í Seltjarnarneskirkju á Æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar 4. mars kl. 11:00  

Starfsfólk sunnudagaskólans þjónar ásamt Pálínu Magnúsdóttur, æskulýðsfulltrúa, sóknarpresti og organista.

Hjónin Örn Sigurðsson og Jelena Kuzminova leika á strengjahljóðfæri ásamt börnum sínum.

Sönghópurinn Meistari Jakob úr Valhúsaskóla syngur undir stjórn Ingu Bjargar Stefánsdóttur.

Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni í safnaðarheimilinu.

Lesa meira
 

05.03.2012, kl. 17:30 Seltjarnarnesbær Bókasafnið: Te og tónlist

Te og tónlist eru hálftíma tónleikar í samstarfi bókasafnsins og Tónlistarskóla Seltjarnarness. Lesa meira
 

05.03.2012 - 30.03.2012, kl. 18:00 Seltjarnarnesbær Bókasafn: Flandur um París - ljósmyndasýning

Opnun ljósmyndasýningar kl. 18:00.
Á sýningunni Flandur um París beinir Einar Jónsson, blaðamaður og ljósmyndari, linsunni að fjölbreyttu mannlífi á götum og torgum Parísarborgar. Flestar myndirnar tók Einar þegar hann dvaldi í borginni við Signu veturinn 2004-2005 en sumar eru aðeins eldri.
Sýningin er opin út mars á opnunartíma safnsins mánudaga til fimmtudaga kl. 10-19 og föstudaga 10-17. Lesa meira
 

06.03.2012, kl. 19:30 Seltjarnarnesbær Bókasafnið: Bókmenntafélagið

Bókmenntafélag bókasafnsins hittist kl. 19:30-20:30. Lesa meira
 

06.03.2012, kl. 19:30 Seltjarnarnesbær Bókasafnið: Prjónakaffi

Þriðjudagur 6.3. kl. 19:30 – 21:30 Prjónakaffi Hittumst og prjónum saman og spjöllum. Katrín Ósk Björnsdóttir leiðbeinir og aðstoðar. Lesa meira
 

07.03.2012, kl. 17:30 Seltjarnarnesbær Bókasafn: Sögustund fyrir yngstu börnin

Sögustund fyrir yngstu börnin - Lesin sagan Múmínsnáðinn á afmæli eftir Tove Jansson. Lesa meira
 

11.03.2012, kl. 9:45 - 10:30 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Fræðslumorgunn

Fræðslumorgunn verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 11. mars kl. 9.45.-10.30.
Hrafnhildur B. Sigurðardóttir segir frá ferð sinni til Írans. Lesa meira
 

11.03.2012, kl. 11:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Grannaguðsþjónusta

Grannauðsþjónusta verður í seltjarnarneskirkju sunnudaginn 11. mars kl. 11 með þátttöku íbúa á Kirkjubraut, Skólabraut, Hrólfskálamel og Bakkavör. Sóknarprestur og organisti kirkjunnar þjóna ásamt félögum úr Kammerkór kirkjunnar er syngja lag eftir Benedikt Antonsson. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kaffihlaðborð. Lesa meira
 

18.03.2012, kl. 9:45 - 10:30 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Fræðslumorgunn - Einn á kajak umhverfi Ísland

 

Fræðslumorgunn verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn  18. mars kl. 9.45-10.30.

Einn á kajak umhverfis Ísland. Gísli H. Friðgeirsson, eðlisfræðingur, segir frá.
Hann kom á haustmisseri og sagði þá frá ferðinni. Nú heldur hann áfram og lýkur skemmtilegri frásögn sinni.

Lesa meira
 

18.03.2012, kl. 11:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Grannamessa

Grannamessa verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 18. mars kl. 11 .
Íbúar á Nesvegi, Selbraut, Sólbraut, Sæbraut, Skerjabraut, Lambastaðabraut og Hamarsgötu taka þátt í athöfninni. Þeir lesa m.a. ritningarlestra og bænir.
Sóknarprestur og organisti þjóna ásamt félögum úr Kammerkór kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn verður á sama tíma.
Kaffihlaðborð. Lesa meira
 

25.03.2012, kl. 10:30 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Fermingarmessur

Tvær fermingarmessur verða í Seltjarnarneskirkju næsta sunnudag 25. mars kl. 10.30 og 13.30.
Sóknarprestur og organisti þjóna ásamt félögum úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju. Lesa meira
 

25.03.2012, kl. 11:00 Seltjarnarnesbær Seltjarnarneskirkja: Sunnudagaskóli

Sunnudagaskólinn í Seltjarnarneskirkju verður með öðru sniði sunnudaginn 25. mars vegna þess að þá eru fermingarmessur. Sunnudagskólinn verður á neðri hæð kirkjunnar og hefst kl. 11:00. Lesa meira
 



Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 1 Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 2