Viðburðir
Menningarnefnd: Jónsmessuganga
Árleg Jónsmessuganga menningarnefndar Seltjarnarness verður farin fimmtudaginn 21. júní kl. 20:00.
Að þessu sinni verður skoðuð jarðfræði Seltjarnarness.
Leiðsögumaður er dr. Helgi Torfason, jarðfræðingur.
Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Bakkatjörn kl. 20:00.
Hressing í lok göngu og fjörusöngur við varðeld - Bjarki Harðarson leikur á nikkuna.
Allir velkomnir
