Viðburðir
Sýningaropnun í Gallerí Gróttu - HULINN HEIMUR IV
Kristín E. Guðjónsdóttir opnar sýningu sína HULINN HEIMUR IV
Í abstrakt verkinu birtast
myndir tilfinninga sem dagsdaglega eru okkur huldar. Litir, form og formleysi,
túlka hér orku þá sem býr hið innra. En allt byggir þetta á persónulegri
upplifun.
Kristín E. Guðjónsdóttir nam myndlist hjá myndlistarkonunni og kennaranum Margréti Zóphóníasdóttur. Einnig hefur hún sótt námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni listamanni og kennara, Ignatius í Kaupmannahöfn, ásamt hjá Anne Juul Cristhophersen í Danmörku.
Kristín hefur áður sýnt verk sín í Löngubúð á Djúpavogi í apríl 2016, hjá Inni og Úti arkitektum í október 2017 og í Lágafellslaug í Mosfellsbæ 2018. Auk þess hefur hún tekið á móti gestum á heimili sínu frá 2014.
Facebook:https://www.facebook.com/hulinnheimur/
Kristín sími: 864-0442
póstfang: keg6@simnet.is
Sýningu lýkur 6. janúar 2019.
Á föstudögum og eftir því sem líður að jólum höfum við það huggulegt og bjóðum upp á eitthvað jólalegt og gott með kaffinu.
Verið hjartanlega velkomin í jólastemninguna í Bókasafni Seltjarnarness í desember.