Skólar á Seltjarnarnesi
Skólar á Seltjarnarnesi
Yfirlit
Leikskólar
Mánabrekka
Leikskólastjóri: Guðbjörg Jónsdóttir
Sími: 5959 280
Netfang: manabrekka@seltjarnarnes.is
Veffang: www.seltjarnarnes.is/manabrekka
Staðsetning: v/Suðurströnd
Sólbrekka
Leikskólastjóri: Soffía Guðmundsdóttir
Sími: 5959 290
Netfang: solbrekka@seltjarnarnes.is
Veffang: /solbrekka
Staðsetning: v/Suðurströnd, 170 Seltjarnarnes
Seltjarnarnesbær rekur tvo leikskóla, Mánabrekku og Sólbrekku. Leikskólarnir heyra undir skólanefnd bæjarins og er leikskólafulltrúi yfirmaður leikskólanna. Í leikskólunum eru börn á aldrinum tveggja til sex ára og er miðað við að öll börn komist í leikskóla á því ári sem þau verða tveggja ára. Skólarnir eru opnir frá kl. 7:30 – 17:30 og boðið er upp á 4 - 9,5 klst. dvalartíma. Leikskólarnir eru lokaðir í 3 daga á ári vegna skipulags- og námskeiðsdaga. Á sumrin er lokað vegna sumarleyfa í 20 daga (4 vikur) og skarast lokunartími þeirra.
Grunnskóli Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóli - Valhúsaskóli
Skólastjóri: Sigfús Grétarsson
Aðstoðarskólastjórar:
Sími: Myrarhúsaskóli - 5959 200 Valhúsaskóli - 5959 250
Fax: Myrarhúsaskóli - 5959 201 Valhúsaskóli - 5959 251
Netfang: myrarhus@seltjarnarnes.is - valhusa@seltjarnarnes.is
Veffang: www.seltjarnarnes.is/grunnskoli
Staðsetning: v/Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Skrifstofa skólans er opin alla skóladaga frá kl. 8:00 - 16:00
Á Seltjarnarnesi er rekinn einn heildstæður grunnskóli, Grunnskóli Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóli - Valhúsaskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn varð til við sameiningu Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla 1. ágúst 2004. Mýrarhúsaskóli tók til starfa árið 1875 og er einn af fimm elstu skólun landsins, en Valhúsaskóli var stofnaður 1974.
Skólastarf fer fram í báðum starfstöðvunum og eru nemendur í 1.-6. bekk í Mýrarhúsaskóla en nemendur í 7.-10. bekk í Valhúsaskóla. Nemendur í grunnskólanum eru um 750. Skóladagurinn hefst kl. 8:10/8:20 en skóladagur nemenda er mislangur sbr. aðalnámskrá grunnskóla. Mötuneyti eru starfrækt í báðum starfstöðvum.
Tónlistarskóli Seltjarnarness
Skólastjóri: Gylfi Gunnarsson
Sími: 5959 235 fax: 5959 176
Netfang: tonlistarskolinn@seltjarnarnes.is
Veffang: http://www.tonvefur.is/selnes
Staðsetning: v/Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Seltjarnarness hóf starfsemi 1974. Nemendur skólans eru rúmlega 250. Frá 1998 hefur öllum 6 ára nemendum í Mýrarhúsaskóla verið boðin forskólakennsla, þeim að kostnaðarlausu. Kennslan fer fram á hefðbundnum skólatíma og megináhersla er lögð á þjálfun söngs og takts. Hverri bekkjardeild er skipt í tvo hópa og fer kennslan fram í Mýrarhúsaskóla. Tónlistarskólinn sér um tónlistarkennslu í leikskólunum fyrir 4 og 5 ára börn einu sinni í viku.