Desember 2008

Jólasýning
Að þessu sinni er ekki um jólaleikrit að ræða. Foreldrafélagið býður upp á brúðleikhús um Einar Áskel sem mjög falleg og skemmtileg sýning og höfðar til allra aldurshópa.
Jólasmiðja
26. nóvember - 16. desember gefst foreldrum og börnum tækifæri til að mæta í listaskála til Ingu og eiga þar notalega stund saman við að búa til fallegt skraut fyrir jólin.
Nánari tíma- og dagsetningar verða auglýstar inni á hverri deild fyrir sig.
Rauð vika
Dagana 1. - 5. desember er "rauð" vika í leikskólanum. Þessa daga er lögð áhersla á rautt enda rauður litur jólanna.
Þann
11. desember kemur Stekkjastaur til byggða. Kvöldið áður geta börnin sett skóinn út í glugga. Síðan koma sveinarnir koll af kolli fram að jólum. Á jólasveinsíðunni má finna frekari upplýsingar um komu jólasveinanna.
Tónleikar
Öllum börnum í Sólbrekku er boðið á aðventutónleika í Tónlistarskóla Seltjarnarness 15. desember. Nemendur Tónlistarskólans spila fyrir börnin bæði jólalög og önnur lög sem ekki tengjast jölunum endilega. Nemendur og kennarar tónlistarskólans taka einstaklega vel á móti okkur og gera sér far um að hafa dagskrána skemmtilega og fjölbreytta þannig að hún höfði til barna á öllum aldri.
Kirkjuferð 17. desember
Alltaf er farið til kirkju á aðventunni. Þar tekur séra Sigurður á móti börnunum, spjallar við þau um jólin og segir þeim jólasögu. Einnig er mikið sungið.

Litlu jólin
Þann 18. desember verða litlu jólin haldin hátíðleg í leikskólanum. Allir koma prúðbúnir þennan dag. Þá er dansað í kringum jólatré og að sjálfsögðu kemur jólasveinn í heimsókn.
