Félagsmálaráð
Félagsmálaráð Seltjarnarness starfar skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lögum um húsnæðismál nr 44/1998. Fer með verkefni barnaverndarnefndar samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002, sbr. og 32. gr. laga nr. 40/1991, málefni aldraðra, samkvæmt lögum nr. 125/1999. Fer með verkefni húsnæðisnefndar skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
Félagsmálaráð er skipað fimm mönnum kjörnum af bæjarstjórn Seltjarnarness og jafnmörgum til vara. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og bæjarstjórnar.
Erindisbréf fyrir félagsmálaráð
Í Félagsmálaráði eru:
| Aðalmenn | Varamenn |
|---|---|
| Ragnar Jónsson, formaður | |
| Pétur Árni Jónsson | Jóhanna Runólfsdóttir |
| Guðrún Edda Haraldsdóttir | Guðmundur Kristjánsson |
| Magnús Margeirsson | Oddný Rósa Halldórsdóttir |
| Edda Kjartansdóttir | Ragnhildur G. Guðmundsdóttir |
