Skólastefna Seltjarnarnesbæjar
Ávarp bæjarstjóra
Metnaður hefur löngum einkennt allt skólastarf á Seltjarnarnesi. Það hefur ætíð verði keppikefli okkar Seltirninga að skólarnir okkar geti brugðist við kröfum íbúa en ekki síður samfélagsins um fyrsta flokks menntun fyrir börn og ungmenni á Seltjarnarnesi. Bæjarfélagið hefur um langt skeið verið í forystu á sviði skólamála og oftar en ekki uppskorið ávinning þess sem fyrstur leggur til atlögu við nýjar áskoranir.
Öflugt skólastarf byggir upp sjálfstæða og hæfa einstaklinga og leggur þannig grunninn að framtíðarhagsæld þjóðarinnar. Raunar er það svo að í breyttum heimi er afar þýðingarmikið að að þjónusta skólanna við nemendur og foreldra skari fram úr og sé á við það besta sem gerist í alþjóðlegu tilliti. Öflugt skólastarf er jafnframt einn af lykilþáttum þess að Seltjarnarnes verði áfram eftirsóknarvert bæjarfélag þar sem fjölskyldufólk kýs að búa sér og börnum sínum framtíðarheimili.
Skólastefnu þeirri er hér lítur dagsins ljós er ætlað að stuðla að markvissri uppbyggingu náms sem miðast við þarfir einstaklingsins, samfellu á milli skólastiga og aukins valfrelsis og ábyrgðar nemenda. Heildstæð skólastefna mun veita börnum og ungmennum á Seltjarnarnesi forskot með tilliti til náms og kennslu og að vonum stuðla að bættum starfsskilyrðum skólafólks á Seltjarnarnesi. Hlutverk sveitarstjórna er að skapa skilyrði fyrir fyrsta flokks skólastarf en jafnframt að sýna festu, samstarfsvilja og tryggja að skólastarf byggi á ábyrgð og metnaðarfullum markmiðum. Margt er vel gert en viðleitni til að efla skólastarf og koma til móts við þarfir nemenda lýkur hins vegar aldrei.
Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri.
Formáli
Skólanefnd Seltjarnarness samþykkti á fundi vorið 2004 að efna til Skólaþings, sem haldið yrði þann 12. október 2005. Íbúar bæjarins, foreldrar, kennarar, annað starfsfólk og nemendur voru hvattir til að taka þátt í þinginu. Á þriðja hundrað manns mættu á Skólaþingið og lögðu sitt af mörkum í umræðuna um hvað góður skóli stendur fyrir. Ákveðið var að niðurstöður þingsins yrðu lagðar til grundvallar við gerð skólastefnu fyrir Seltjarnarnes.
Í kjölfar Skólaþingsins var skipaður vinnuhópur sem starfaði undir stjórn Bjarna Torfa Álfþórssonar formanns skólanefndar. Aðrir í vinnuhópnum voru: Gunnar Lúðvíksson og Valgerður Janusdóttir frá skólanefnd, Sonja Jónasdóttir og Gerður Kristjánsdóttir frá leikskólum, Laufey A. Sigvaldadóttir og Helga Kristín Gunnardóttir frá grunnskóla, Ólöf María Ingólfsdóttir frá tónlistarskóla, María Björk Óskarsdóttir, Rögnvaldur Sæmundsson og Þórir Már Einarsson fulltrúar foreldra. Auk þess var stofnaður rýnihópur þar sem stjórnendur skólanna, kennarar, foreldrar og nemendur fengu tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar til vinnuhópsins.
Starfsmenn hópsins voru Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Margrét Harðardóttir grunnskólafulltrúi.
Inngangur
Skólastefna Seltjarnarness er í umsjá og á ábyrgð skólanefndar. Í því felst að stefnan er unnin, kynnt, gefin út og henni framfylgt. Skólastefnan skal vera í stöðugri endurskoðun. Skólum á Seltjarnarnesi er ætlað að taka mið af skólastefnunni við gerð skólanámskrár.
Seltjarnarnes leggur áherslu á að reka góða skóla þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið skólastarf sem byggir á góðu starfsumhverfi, góðri samvinnu nemenda, foreldra/forráðamanna, starfsfólks og annarra samstarfsaðila. Í skólastefnunni er lögð áhersla á samvinnu milli skólanna og að skóladagur sé samfelldur fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra. Í samvinnu við heimilin og aðrar stofnanir bæjarins er skólunum ætlað að taka virkan þátt í að byggja upp samfélag sem tekur mið af þeim breytingum sem sífellt eiga sér stað.
Hlutverk skóla, í samvinnu við heimilin, er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi. Þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun þar sem allir hafa sama rétt til náms í samræmi við áhugasvið og færni. Mikilvægi góðrar menntunar er óumdeilt fyrir farsæld einstaklingsins og samfélagið í heild. Framtíð þjóðar og hagsæld byggir að flestra mati á bættum tækifærum til menntunar.
Skólastefna Seltjarnarness
Skólastefna Seltjarnarness er leiðarvísir fyrir skólasamfélagið á Seltjarnarnesi. Hún er skrifuð með allt skólastarf í huga og á því jafnt við um leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Stefnan skapar grunn að stefnumótun einstakra skóla og nýtist við eftirfylgni með starfsemi þeirra.
Í skólastefnunni er lögð áhersla á að barnið sé ávallt í brennidepli. Allt skólastarf á að mæta þörfum hvers og eins hvað varðar innihald náms og kennsluhætti, stuðla að vellíðan nemenda og hamingju þannig að þeir öðlist þroska, þekkingu, færni og reynslu til að takast á við verkefni framtíðarinnar.
Í lýðræðisþjóðfélagi byggir nám og kennsla í góðum skóla á metnaðarfullu og hæfileikaríku starfsfólki, faglegri stjórnun og forystu, fjölbreyttum starfs- og kennsluaðferðum ásamt virkri þátttöku nemenda og foreldra.
Í skólastefnunni er lögð áhersla á gott samstarf og sátt um skólastarfið. Nemendur, foreldrar þeirra, kennarar og annað starfsfólk vinni saman að því að byggja upp jákvætt samfélag, góðan starfsanda og heilbrigðan aga í metnaðarfullu, skapandi og öruggu umhverfi.
Skólastarfið miðar að því að nýta sérstöðu Seltjarnarness sem er m.a: samfelldur vinnudagur barnanna, nálægð og gott samstarf stofnana, öflugt íþrótta- og tómstundastarf, ásamt náttúrunni.
Skólastefna Seltjarnarness er byggð þannig upp að hlutverkið er skilgreint og framtíðarsýninni lýst. Hornsteinar í góðum skóla eru: Nemendur og skólinn; starfsfólkið og skólinn; heimilin og skólinn; starfsfólkið og skólinn og samfélagið og skólinn.
Skólastefna Seltjarnarness á að vera í stöðugri endurskoðun en í því felst að hún er endurmetin með reglubundnum hætti og uppfærð eftir sem við á.
Fylgjast þarf með á faglegan hátt hvort skólastefnunni sé framfylgt og hvort markmiðin náist. Skilgreina þarf samræmda mælikvarða sem gefa raunhæfa mynd af stöðunni og ná yfir „hornsteina“ skólasamfélagsins.
Skólanefnd setur viðmið um mælikvarða og upplýsingar um árangur hverju sinni.
Hlutverk
Hlutverk skólastarfs á Seltjarnarnesi er að veita öllum börnum jafnan rétt til góðrar menntunar við hæfi hvers og eins og efla áhuga og löngun þeirra til frekari menntunar og þroska.
Framtíðarsýn
Öll börn á Seltjarnarnesi hafi gleði af námi, beri virðingu hvert fyrir öðru og séu örugg í heilbrigðu og hvetjandi skólaumhverfi.
Öll börn á Seltjarnarnesi læri sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu, samskipti og öðlist þannig sterka sjálfsmynd, tækifæri og metnað til frekari menntunar á sínu áhugasviði.
Öll börn á Seltjarnarnesi verði sjálfstæðir og ábyrgir einstaklingar sem láti gott af sér leiða í lýðræðisþjóðfélagi.
Öll börn á Seltjarnarnesi fái kennslu í skólum sem hafi á að skipa hæfileikaríku og metnaðarfullu starfsfólki í hvetjandi starfsumhverfi.
Öll börn á Seltjarnarnesi upplifi gagnkvæma virðingu og traust milli allra aðila sem að skólastarfinu koma.
Markmið
Nemendur og skólinn
Í góðum skóla
- líður nemendum vel og þeir hafa gleði af námi í öruggu umhverfi
- bera nemendur virðingu hver fyrir öðrum og læra að meta gildi samskipta í leik og starfi
- læra nemendur að tileinka sér heilbrigða lífshætti
- byggja nemendur upp jákvæða sjálfsmynd
- fá námshæfileikar og sköpunargleði hvers og eins að njóta sín
- læra nemendur að vinna saman, setja sig í spor annarra og sýna tillitssemi
- læra nemendur að velja og hafna og taka sjálfstæðar ákvarðanir
- læra nemendur að þekkja eigin tilfinningar
- er siðgæðisvitund ræktuð með nemendum
- læra nemendur sjálfstæð, vönduð og fjölbreytt vinnubrögð og temja sér gagnrýna hugsun
- hafa nemendur rétt á að láta í ljós skoðun sína um öll mál sem snerta þá sjálfa
- sýna nemendur metnað og bera ábyrgð á námi sínu með því að stunda það af samviskusemi
- eru nemendur hvattir til að afla sér frekari menntunar
Starfsfólkið og skólinn
Í góðum skóla:
- er sterk fagleg forysta
- er hæft, metnaðarfullt og áhugasamt starfsfólk
- er borin virðing fyrir starfsfólki og sérþekkingu þess
- er starfsfólki boðið upp á metnaðarfullt vinnuumhverfi
- ríkir góður starfsandi og starfsánægja
- er sýnd vinsemd og jákvætt viðmót
- er starfsfólki boðin starfsþjálfun og hvatt til starfsþróunar
- er lögð áhersla á góða samvinnu starfsfólks
- sýnir starfsfólk umhyggju og ber virðingu fyrir hverjum einstaklingi
- stuðlar starfsfólk að heilbrigðum viðhorfum og er góð fyrirmynd
- sýnir starfsfólk fagmennsku í starfi og nýtir fjölbreytta kennsluhætti
Heimilin og skólinn
Í góðum skóla:
- er gott samstarf við heimili nemenda
- ríki gagnkvæm virðing milli heimila og skóla sem byggir á jákvæðum samskiptum
- er gott upplýsingastreymi milli heimila og skóla
- er þekking foreldra á eigin börnum metin
- eru foreldrar hvattir til samvinnu og þátttöku um menntun og uppeldi
- eru foreldrar vel upplýstir um náms- og kennsluaðferðir
- eru foreldrar velkomnir
- er fagþekking foreldra á hinum ýmsu sviðum nýtt
- er hlúð að starfi foreldraráða og foreldrafélaga
Samfélagið og skólinn
Í góðum skóla:
- er skólastarfið órjúfanlegur hluti af mannlífinu og samfélaginu í heild
- er borin virðing fyrir einstaklingnum og umhverfinu
- er samstarf og samfella á milli skólastiga
- er góð samvinna við íþrótta- og tómstundafélög
- er gott samstarf við grenndarsamfélagið
- er unnið eftir virkri forvarnarstefnu með víðtækri þátttöku
- er samvinna og trúnaður milli skóla og skólayfirvalda
- er umhverfi og náttúra nýtt til náms og kennslu
