Starfsmannastefna Seltjarnarnesbæjar
-
Skilgreining
Starfsmannastefna Seltjarnarnesbæjar nær til allra þeirra sem ráðnir eru í þjónustu Seltjarnarnesbæjar og eru félagar í stéttarfélögum, er falla undir 4. og 5. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir lögum, ákvæðum kjarasamninga og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, sbr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og V. kafla samþykktar um stjórn Seltjarnarness og fundarsköp. Starfsmannastefna þessi nær einnig til þeirra starfsmanna Seltjarnarnesbæjar, sem eru í stéttarfélögum, er gera kjarasamninga á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Starfsmannastefnunni er ætlað að mynda skýra umgjörð um þau starfsskilyrði sem sveitarfélagið býður starfsmönnum sínum og lýsa þeim almennu kröfum sem þeir þurfa að uppfylla svo veita megi íbúum Seltjarnarnesbæjar eins góða þjónustu og mögulegt er að bjóða að teknu tilliti til aðstæðna hverju sinni.
-
Markmið
Seltjarnarnesbær mun með starfsmannastefnu þessari leitast við að ná fram eftirtöldum markmiðum:
- Að ráða hæft, áhugasamt og traust starfsfólk og efla það í starfi.
- Að tryggja góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk og leggja kapp á að aðbúnaður, hollustuhættir og vinnuaðstaða sé eins og best verður á kosið.
- Að gagnkvæmt traust og gott samstarf ríki meðal og á milli starfsfólks og kjörinna fulltrúa.
- Að starfsfólk eigi kost á fræðslu og endurmenntun, sem eykur þekkingu þess í starfi.
- Að starfsfólk sé vel upplýst um verkefni sín og skyldur svo og um stjórnkerfi Seltjarnarness.
- Að treysta góð samskipti milli starfsmanna og bæjarbúa.
- Að starfsemi stofnana sveitarfélagsins verði skilvirk og hagkvæm
-
Skyldur starfsfólks
Um skyldur starfsfólks fer samkvæmt kjarasamningum, ráðningarsamningum og lögum eftir því sem við á. Því til viðbótar gerir Seltjarnarnesbær eftirfarandi kröfur til starfsfólks síns.
- Að það sýni hlýtt viðmót og kappkosti að veita góða þjónustu.
- Að það viðhaldi eigin heilsu eins vel og kostur er með heilbrigðum lifnaðarháttum.
- Að það beri einkennisfatnað við störf, sé þess óskað af bæjarstjórn og fatnaður þá látinn í té án endurgjalds.
- Að það viðhaldi faglegri þekkingu sinni í samræmi við þær kröfur, sem starfið gerir.
- Að það hlíti því, að starfslýsingu og verkefnum sé breytt, ef aðstæður krefja að mati bæjarstjórnar, enda verði launakjör og réttindi eigi lakari jafnlangan tíma og réttur starfsmanns til uppsagnarfrests er samkvæmt kjarasamningi.
- Að gæta þagmælsku og trúnaðar um þau atriði, sem það verður áskynja um í starfi sínu.
-
Um aukastörf
Áður en starfsmaður hyggst samhliða starfi sínu taka við launuðu starfi í þjónustu annars aðila, ganga í stjórn atvinnufyrirtækis eða stofna til atvinnurekstrar ber honum að skýra bæjarstjóra frá því, eða eftir atvikum viðkomandi forstöðumanni. Innan tveggja vikna skal starfsmanni skýrt frá því, ef áðurnefnd starfsemi telst ósamrýmanleg starfi hans og honum bannað að hafa hana með höndum jafnhliða starfi sínu hjá Seltjarnarnesbæ. Slíku banni getur starfsmaðurinn skotið til bæjarstjórnar.
Rétt er að banna starfsmanni slík störf, sem í 1. mgr. greinir, ef það er síðar leitt í ljós, að þau fara ekki saman við starf hans hjá Seltjarnarnesbæ.
-
Siðareglur starfsfólks
Bæjarstjórn setur fram eftirtaldar siðareglur til leiðbeiningar fyrir starfsfólk um hvað sé við hæfi í starfi:
- Starfsfólk Seltjarnanarnesbæjar starfar fyrst og fremst í þágu bæjarbúa, sem leggur því þá skyldu á herðar þeirra að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum, hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa.
- Hlutverk bæjarstarfsmanna er að veita kjörnum fulltrúum hjá Seltjarnarnesbæ ráðgjöf og annast framkvæmd á ákvörðunum, sem þeir taka fyrir hönd bæjarbúa. Gagnkvæmt traust verður að ríkja milli kjörinna fulltrúa og starfsmanna, og má hvorugur aðilinn misbjóða hinum, þannig að traust þeirra rýrni.
- Yfirmenn, sem taka ákvarðanir eða gera tillögur um ráðningu á starfsfólki, skulu gæta persónulegs hlutleysis í hvívetna og forðast að láta skyldleika, vensl, vinskap eða stjórnmálaskoðanir ráða ákvörðun sinni, sbr. ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
- Starfsfólk, sem tekur ákvarðanir um kaup á vörum og þjónustu fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar, skal ávallt gæta hagsmuna bæjarins og persónulegs hlutleysis við val á viðskiptaaðilum.
- Starfsfólki ber að upplýsa almenning um starfshætti og rekstur Seltjarnarnesbæjar, en þó skal það gæta trúnaðar gagnvart öllum óviðkomandi um málefni einstaklinga og upplýsingar um einkahagi fólks, er það verður áskynja í starfi, sbr. ákvæði 5. og 6. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996.
-
Stjórnkerfi
Það er stefna Seltjarnarnesbæjar að dreifa valdi, ábyrgð og ákvarðanatöku í stjórnkerfinu, þannig að sjálfstæði og frumkvæði starfsmanna sé sem mest, en sé jafnhliða háð öflugu samræmingar- og eftirlitskerfi, einkum í fjármálum og starfsmannamálum.
Yfirmönnum deilda og stofnana er ætlað að skapa samkennd meðal starfsmanna sinna og gera þeim grein fyrir markmiðum með starfseminni, en einnig að sjá til þess, að samstarf við aðrar deildir og stofnanir sé í eðlilegu horfi.
Bæjarstjórn hvetur hvern þann starfsmann, sem telur sig eiga til þess erindi, að ná tali af yfirmönnum sínum til þess að koma á framfæri ábendingum, sjónarmiðum, kvörtunum eða hugmyndum, sem starfsmaðurinn telur skipta máli fyrir sig persónulega í starfi og eða fyrir bæjarfélagið.
Í því skyni að tryggja skipulega og skilvirka úrlausn erinda starfsmanna er til þess mælst, að starfsmenn beri erindi sín að jafnaði upp við næsta stjórnanda, sem síðan annist tengsl við aðra, eftir því sem skipurit Seltjarnarnesbæjar gerir ráð fyrir og þörf krefur svo leyst verði úr erindinu.
-
Upplýsingar
Seltjarnarnesbær vill halda uppi góðu upplýsingaflæði meðal starfsmanna, svo að þeir geti leyst öll verkefni sín af hendi á árangursríkan hátt og bærinn þannig náð fram markmiðum sínum.
Upplýsingum skal komið á framfæri þannig að þær séu hvetjandi fyrir starfsmenn, en jafnframt skal tekið tillit til þess trúnaðar, sem nauðsynlegur getur verið. Upplýsingar skulu settar fram á skýran og greinargóðan hátt.
Forstöðumenn stofnana bera ábyrgð á því, að upplýsingamiðlun til starfsmanna þeirra sé virk. Allir, er búa yfir upplýsingum, sem nauðsynlegar eru öðrum, bera ábyrgð á því, að þær berist réttum aðilum. Telji starfsmenn sig skorta upplýsingar, er varða störf þeirra, skulu þeir sjálfir afla þeirra hjá réttum aðilum.
-
Ráðningar
Bæjarstjórn skal ákveða um fjölda heimilaðra stöðugilda hverju sinni. Ekki skal ráðið í nýtt starf án þess að bæjarstjóri eða viðkomandi sviðsstjóri skili kostnaðarmati og greinargerð um starfið til fjárhags og launanefndar um þörf fyrir ráðningu í það og skal starfið ekki auglýst fyrr en stöðuheimild er veitt af fjárhags- og launanefnd. Áður en eldra starf er auglýst laust til umsóknar skal sviðsstjóri ef tilefni er til framkvæma mat á þörf fyrir ráðningu í starfið og skila slíku mati skriflega til bæjarstjóra sem leggur það fyrir fjárhags- og launanefnd ef þörf krefur. Kanna skal hvort þörf er á breytingu á starfslýsingu eða kröfu til umsækjenda eða ekki. Einnig skal kanna möguleika þess að leggja starfið niður eða sameina það öðru.
Bæjarstjórn annast ráðningu bæjarstjóra, framkvæmdastjóra sviða og forstöðumenn stofnana, sbr. 54. og 56. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Bæjarstjóri annast ráðningu annarra starfsmanna að fenginni tillögu forstöðumanna stofnana. Bæjarstjóri skal ársfjórðungslega gera fjárhags- og launanefnd grein fyrir nýráðningum starfsmanna.
Starfsfólk skal að jafnaði ráðið ótímabundinni ráðningu, og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur þrír mánuðir nema um annað sé samið sérstaklega.
Forstöðumönnum stofnana er heimilt innan marka fjárveitinga í fjárhagsáætlun hverju sinni að ráða fólk til tímabundinna starfa með samþykki bæjarstjóra eða sviðsstjóra.
Við ráðningar í laus störf skal það haft að leiðarljósi, að viðkomandi uppfylli sem best þær kröfur, er gerðar eru til starfsins. Við ákvörðun um ráðningu, stöðuhækkanir eða kaup og kjör skal starfsfólki ekki mismunað á grundvelli sjónarmiða, sem byggð eru á kynferði þeirra, kynþætti, litarhætti, þjóðerni, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, þjóðfélagsstöðu, ætterni eða öðrum sambærilegum ástæðum. Fatlaðir njóta forgangs til starfa í samræmi við ákvæði 32. gr. laga nr. 59/1992. Konur og karlar hafa jafnan rétt til starfa og til sömu launa fyrir sambærileg störf.
-
Starfsmannahald
Fjármála- og stjórnsýslusvið hefur umsjón með starfsmannamálum hjá Seltjarnarnesbæ. Helstu verkefni starfsmannahalds eru:
- Að sjá til þess að forstöðumenn stofnana geri skriflega ráðningasamninga við alla starfsmenn.
- Að hafa yfirumsjón með lausnum frá störfum og viðskilnaði þeirra, er láta af störfum. Einnig umsjón með áminningum og lausnum frá störfum um stundarsakir í samráði við sviðsstjóra og bæjarstjóra.
- Að uppfæra starfsmannaskrár, þar sem fram koma eftirtaldar upplýsingar um starfsmenn: Nafn, starfsheiti, menntun, vinnustaður, kyn, lífaldur, þjónustualdur, starfsaldur og fyrri störf. Aðrar upplýsingar um starfsfólk eru trúnaðarmál og varðveitast hjá bæjarritara.
- Að hafa umsjón með framkvæmd kjarasamninga, sem unnið er eftir hjá Seltjarnarnesbæ hverju sinni, svo sem útreikningur launa og tengdra gjalda og frádráttur opinberra gjalda. Ennfremur skráning upplýsinga af vinnuskýrslum um orlof, veikindadaga, menntun, starfsaldur o.þ.u.l. Forstöðumenn stofnana skulu skila vinnuskýrslum til starfsmannahalds fyrir 20. dag hvers mánaðar, og skal hver vinnuskýrsla útfyllt og undirrituð svo sem reglur þar um eru ákveðnar. Einnig umsjón með því, að starfsfólki séu greidd laun skv. gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
- Að hafa umsjón með starfsmati og starfslýsingagerð á vegum starfsmatsnefndar í samráði við bæjarritara.
- Að hafa umsjón með lífeyrisgreiðslum til starfsmanna Seltjarnarnesbæjar í þeim tilvikum sem við á.
- Að veita ráðgjöf og upplýsingar til stjórnenda og bæjarfulltrúa varðandi starfsmannamál.
- Að hafa umsjón með skipulagi starfsmannamála, þ.e. upplýsingamiðlun, vinnutilhögun, orlofsmálum, velferðarmálum starfsfólks o.þ.u.l.
- Að hafa frumkvæði að nýjungum í starfsmannamálum.
-
Kjarasamningar og stéttarfélög
Bæjarstjórn ákveður hverju sinni, hvaða stéttarfélög eru viðurkennd sem samningsaðilar fyrir starfsfólk. Bæjarstjórn tilnefnir aðila af hálfu bæjarins til þess að vinna að gerð kjarasamninga, og skulu kjarasamningar staðfestir af bæjarstjórn eða þeim aðilum, sem hún felur umboð til þess.
Í kjarasamningi skal kveða á um föst laun, vinnutíma, laun fyrir yfirvinnu, matar- og kaffitíma, verkfæri og vinnuföt, orlof, bifreiðakostnað, ferðakostnað, fæðisaðstöðu, fæðiskostnað, tryggingar, starfsmenntun og önnur atriði, sem aðilar verða sammála um. Starfskjör bæjarstjóra og forstöðumanna sviða eru utan stéttarfélaga og ákveðin af bæjarstjórn.
Um kjarasamninga fer samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 og lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938.
-
Samráð um kjaramál og fleira
Samráð Seltjarnarnesbæjar og fulltrúa starfsfólks varðandi kjaramál og fleira skal fara fram í starfskjaranefndum og í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Starfskjaranefndir fara með eftirfarandi verkefni:
- Sjá um framkvæmd starfsmats eftir því sem við á og skipa starfsmatsnefnd, sem í sitja tveir fulltrúar stéttarfélags og tveir fulltrúar Seltjarnarnesbæjar. Starfsmatsnefnd skal eiga kost á sérfræðilegri aðstoð.
- Taka við umsóknum um mat á nýjum störfum og endurmat starfa og vísa þeim til starfsmatsnefndar, þannig að nefndin hafi jafnan fulla yfirsýn yfir starfsmatsmál.
- Fjalla um ágreiningsmál sem upp kunna að koma milli aðila vegna túlkunar og framkvæmda á kjarasamningi.
- Gera tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun á einkennisfatnaði til starfsmanna.
- Milli kjarasamninga fara nefndirnar með röðun starfa í launaflokka með hliðsjón af niðurstöðum starfsmatsnefndar.
- Meta hvaða námskeið skulu viðurkennd til launaflokkahækkana og launaðra námsleyfa samkvæmt ákvæðum kjarasamninga.
- Fjalla um nýmæli sem upp kunna að koma milli kjarasamninga.
Stéttarfélög tilnefna trúnaðarmenn úr hópi starfsfólks samkvæmt lögum og samningum þar um. Trúnaðarmenn skulu gæta þess að kjarasamningar séu haldnir og réttur starfsfólks í hvívetna virtur.
-
Starfsagi
Ef starfsmaður hefur sýnt í starfi sínu óstundvísi eða aðra vanrækslu, óhlýðni við löglegt boð og bann yfirmanns síns, vankunnáttu eða óvandvirkni í starfi, hefur ekki náð fullnægjandi árangri í starfi, hefur verið ölvaður að starfi, brotið trúnað eða þagmælsku, eða hafi framkoma hans og athafnir í starfi eða utan þess þótt að öðru leyti ósæmilegar eða ósamrýmanlegar starfinu, skal forstöðumaður stofnunar að höfðu samráði við bæjarstjóra veita honum skriflega áminningu. Áður skal þó gefa starfsmanni kost á að tala máli sínu, ef það er unnt. Við ítrekað brot má starfsmaður búast við uppsögn.
-
Orlof
Samkvæmt gildandi kjarasamningum er tímabil sumarorlofs 15. maí til 30. september. Í aprílmánuði skal liggja fyrir, hvenær starfsmaður verður í sumarorlofi, en það skal vera meginregla, að allt eða meginhluti orlofs sé tekið á sumarorlofstíma.
-
Lausn úr starfi
Bæjarstjórn veitir eftirtöldum starfsmönnum lausn frá störfum: Bæjarstjóra, forstöðumönnum sviða og forstöðumönnum stofnana. Bæjarstjóri veitir öðrum starfsmönnum lausn frá störfum að höfðu samráði við viðkomandi forstöðumann stofnunar. Ákvarðanir bæjarstjóra um lausn starfsmanna úr starfi skulu tilkynntar bæjarstjórn tafarlaust hverju sinni.
-
Fjarvistir
Yfirmenn skulu skrá allar fjarvistir á vinnuskýrslur. Ef starfsmaður veikist og getur af þeim sökum eigi sótt vinnu, skal hann tilkynna það yfirmanni sínum. Um rétt starfsfólks í veikindaforföllum fer samkvæmt ákvæðum kjarasamninga hveru sinni. Um rétt starfsfólks til fæðingar- og foreldraorlofs fer samkvæmt lögum nr. 95/2000 og ákvæðum kjarasamninga.
-
Starfslýsingar
Gera skal starfslýsingar fyrir öll störf, sem starfsmenn eru ráðnir til ótímabundið. Þær skulu gerðar af forstöðumanni stofnunar í samráði við þá, sem störfunum gegna undir leiðsögn starfsmatsnefndar, og skulu þær staðfestar af fjárhags- og launanefnd. Sé um hópa að ræða, geta þeir tilnefnt fulltrúa, einn eða fleiri, til þess að veita nauðsynlegar upplýsingar. Í starfslýsingu skal meðal annars koma fram ábyrgðarsvið og helstu verkefni starfsmanns, en einnig stjórnunarsvið, ef við á.
Starfslýsingar gilda ekki sem erindisbréf, því í þeim er aðeins lýst meginverkefnum starfsmanns, en í þeim er ekki gefin tæmandi lýsing á þeim verkefnum, sem upp geta komið í starfi.
-
Starfsmenntun
Það er stefna Seltjarnarnesbæjar að leggja rækt við menntunarmál starfsfólks, svo hagnýt og fræðileg þekking þess sé ætíð í samræmi við kröfur tímans. Umsjón með slíku fræðslustarfi skal vera í höndum sviðsstjóra í nánu samstarfi við viðkomandi forstöðumenn stofnana og stéttarfélög.
Með starfsmannastefnunni er gerð sú krafa til allra sem vinna fyrir sveitarfélagið að þeir fylgist með nýjungum á starfssviði sínu og að þeir nýti sér þær í þágu hagræðingar og aukinnar þjónustu til íbúa sveitarfélagsins og þeirra fyrirtækja og stofnana sem sveitarfélagið hefur samskipti við. Í því sambandi skulu starfsmenn sérstaklega fylgjast með þróun upplýsingatækninnar og nýta sér hana eins vel og kostur er þannig að sveitarfélagið og stofnanir þess verði ávallt í fremstu röð á því sviði.
-
Starfsferill
Það er stefna Seltjarnarnesbæjar að skapa starfsmönnum sínum möguleika á samfelldum starfsferli, þannig að eftir föngum verði tekið tillit til breytinga á aldri eða persónulegum högum, aukinnar reynslu, aukinnar menntunar og fleiri þátta, sem leiða til þarfar einstaklingsins fyrir umskipti í störfum. Tilfærslur milli starfa geta einnig verið ákjósanlegar í þeim tilgangi að ná fram öðrum markmiðum í starfsmannamálum, meðal annars með því að skapa starfsmönnum reynslu á nýju sviði eða að undirbúa þá undir ábyrgðarmikil stjórnunarstörf. Einnig geta tilfærslur milli starfa verið nauðsynlegar vegna breyttra áherslna í starfsemi stofnana, hagræðingar í rekstri eða breytinga á stjórnkerfi.
Óski starfsmaður eftir tilfærslu, skal hann leita til viðkomandi yfirmanns og/eða bæjarstjóra. Reynt skal að verða við þeim óskum, ef mögulegt er, einkum hjá þeim, sem hafa starfað lengi hjá Seltjarnarnesbæ. Ef nauðsyn krefur, áskilur Seltjarnarnesbær sér einnig rétt til þess að færa starfsmenn milli starfa, og skal þá viðkomandi halda föstum launum, sem fyrra starfinu fylgdu í næstu tólf mánuði á eftir, ef um lægra launað starf er að ræða.
-
Vinnustaðurinn
Seltjarnarnesbær leggur mikla áherslu á að vinnusvæði sem starfsmönnum er ætlað, sé aðlaðandi og að starfsmönnum geti liðað þar sem best. Til þess að svo megi verða er lögð áhersla á að:
- Allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar skulu leggja sitt af mörkum til að skapa aðlaðandi og þægilegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk. Stuðlað skal að því að jákvætt viðmót og gagnkvæm virðing ríki milli allra þeirra sem starfsmannastefnan nær til. Sama gildir um samskipti starfsmanna og kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn og nefndum.
- Ávallt skal haft að leiðarljósi að skapa aðstæður til að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé sem mest. Tryggt skal að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum starfsmanna sveitarfélagsins séu í sem bestu horfi.
- Leitast skal við að skapa starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Konum og körlum skal gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, s.s. vegna umönnunar barna og sjúkra á heimili. Starfsmenn skulu eiga kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa í því tilliti.
- Vinnustaðir sveitarfélagsins skulu vera reyklausir á grundvelli ákvæða laga og reglugerða þar að lútandi. Þar skulu ekki höfð um hönd vímuefni af neinu tagi. Starfsmönnum sem vilja vinna úr vandamálum sem tengjast misnotkun vímuefna skal veita leiðbeiningar og aðstoð til þess. Ef starfsmaður þarfnast meðferðar á stofnun vegna vanda síns á þessu sviði hefur hann rétt á sérstöku veikindaleyfi vegna fyrstu dvalar sinnar á meðferðarstofnun.
- Almennt skal leitast við að skipuleggja störf og verkefni þannig að dagvinnuframlag starfsmanna nægi til að inna þau af hendi. Yfirvinnu skal að jafnaði haldið innan hóflegra marka. Fjárhags - og launanefnd setur reglur um hámarksfjölda yfirvinnustunda, ef þurfa þykir.
20. Starfslok og lífeyrir
Bæjarstjóri hefur rétt til þess að segja starfsmanni upp störfum, eftir því sem fyrir er mælt í ráðningarsamningi.
Starfsmanni skal veita lausn úr starfi, þegar hann er fullra 70 ára að aldri eða í síðasta lagi um næstu mánaðamót á eftir. Kennurum skal þó heimilt að halda ráðningu sinni út það skólaár sem þeir verða 70 ára.
Forstöðumenn stofnana og hærra settir yfirmenn skulu láta af því starfi við 65 ára aldur, en þeim skal jafnan tryggt áframhaldandi starf, og gilda þá sömu reglur um aldurshámark og hjá almennum starfsmönnum. Regla þessi skal ekki hafa áhrif til lækkunar á grundvelli áunninna lífeyrisréttinda.
Samkomulag um nýtt starf skal liggja fyrir að minnsta kosti sex mánuðum áður en framangreint ákvæði kemur til framkvæmda. Ákvæði þetta hefur ekki áhrif á föst dagvinnulaun, nema um breytt starfshlutfall verði að ræða.
Seltjarnarnesbær vill stuðla að því, að þegar starfsfólk eldist eigi það kost á að færa sig í minna krefjandi störf og minnka við sig starfshlutfall.
Starfsmenn skulu greiða iðgjald í þann lífeyrissjóð, sem stéttarfélag þeirra er aðili að.
