Umsókn um þjónustukort atvinnulausra
Seltjarnarnesbær býður atvinnulausum að nýta sér ýmsa þjónustu bæjarins sér að kostnaðarlausu með því að nota þjónustukort.
Ef þú ert atvinnulaus og með að minnsta kosti 50% bótarétt úr Atvinnuleysistryggingasjóði og átt ekki rétt á styrk frá stéttarfélagi til að stunda líkamsrækt þá býðst þér að sækja um sérstakt þjónustukort sem veitir aðgang að ýmissi þjónustu bæjarins þér að kostnaðarlausu.
Gegn framvísun þjónustukortsins færðu:
- ókeypis bókasafnskort til þriggja mánaða
- aðgang að Sundlaug Seltjarnarness án endurgjalds í þrjá mánuði
- ókeypis þriggja mánaða kort í heilsurækt World Class á Seltjarnarnesi
Sæktu um kortið með því að fylla út formið hér að neðan og senda inn. Einnig er hægt að sækja um kortið skriflega í þjónustuveri Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2.
Endurnýjun korts: Hægt er að sækja um endurnýjun kortsins ef viðkomandi hefur notað fyrra kort a. m. k. 18 sinnum á tímabilinu í líkamsrækt/sundlaug. Hægt er að sækja um kort tvisvar á árinu.
* athugið að nauðsynlegt er að fylla inn í alla reitina.
Sækja um þjónustukortViltu fylgjast með fréttum af þjónustu og úrræðum sem Seltjarnarnesbær býður atvinnulausum?
Skráðu þig, svaraðu stuttri könnun og við sendum þér fréttir af þjónustu í tölvupósti.
