Stjórnsýsla

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

Gjaldskrár

Gjaldskrá fyrir Skólaskjól

 

Þjónusta og starfsemi

Skólaskjól eða Skjólið er dagvist fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Markmiðið með starfsemi Skjólsins er að mynda umgjörð um heildstæðan skóladag nemenda. Skólaskjólið starfar samkvæmt áherslum og markmiðum skólastefnu Seltjarnarnesbæjar. Þar er leitast við að skapa heimilislegt andrúmsloft þar sem börnin fást við margvísleg þroskandi viðfangsefni, taka þátt í hópastarfi, útivist, leikjum og fá aðstoð við heimanám.

Skólaskjólið er opið daglega á starfstíma skóla og býðst nemendum að dvelja þar til allt að kl. 17:15. Opnunartími er í samræmi við starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness. Skjólið veitir þjónustu eftir þörfum í jóla-, vetrar- og páskafríum auk þess að vera opið á foreldra- og skipulagsdögum skólans.

Innritun í Skólakjólið fer fram í maímánuði, fyrir komandi skólaár, gegnum „Rafrænt Seltjarnarnes“ á vef Seltjarnarnesbæjar http://rafraent.seltjarnarnes.is/pages/. Velja þarf upphafstíma og lokatíma fyrir alla daga. Allar breytingar sem gerðar eru eftir innritun skal tilkynna til forstöðumanns Skólaskjóls. Breytingar þurfa að vera gerðar fyrir 10. dag mánaðar svo þær taki gildi frá næstu mánaðamótum.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 10. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Þjónustu er sagt upp hjá forstöðumanni.

 

Gjaldskrá Skólaskjóls

Mánaðargjald:

Allt að 20 tímar:                                               7.325 kr.
20-39 tímar:                                                    11.254 kr
Fleiri en 40 stundir:                                      16.478 kr.

Síðdegishressing:

Vegna 20 tíma á mánuði:                              1.460 kr.
Vegna 40 tíma á mánuði:                              2.434 kr.
Vegna fleiri en 40 tíma á mánuði:               3.3245 kr.

Ef þjónustan er nýtt frá kl. 8.00 - 13.30 á foreldra- og starfsdögum skóla eða í jóla- vetrar og páskafríi þarf að greiða 988 kr. á dag.

Afslættir:

  • Afsláttur er á milli skólastiga (leikskóla og skólaskjóls).
  • Systkinaafslættir 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn (gildir einnig ef yngra /yngsta systkini er hjá dagforeldri). Fullt gjald greiðist ávallt fyrir yngsta barn.
  • Námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í námi og einstæðir foreldrar fá 40% afslátt af dvalargjaldi.
  • Námsmenn þar sem annað foreldri er í námi fá 25% afslátt af dvalargjaldi.
  • Námsmenn þurfa að framvísa staðfestingu frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn og kemur afsláttur til framkvæmda um mánaðamót eftir að staðfestingu er skilað.
  • Afsláttur er ekki veittur af fæðiskostnaði.
  • Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald gegn framvísun vottorðs um hjúskaparstöðu (skal skilað árlega) og kemur afsláttur til framkvæmda um mánaðamót eftir að vottorði er skilað.

 

Innheimta

Gjöld fyrir þjónustu Skólaskjóls eru innheimt með greiðsluseðli, VISA, MasterCard eða greiðsla fer í gegnum banka. Greiða skal fyrirfram og er eindagi 15. hvers mánaðar, eftir eindaga leggjast á dráttarvextir. Skuldi foreldrar 3 mánuði er þjónustu Skólaskjóls sagt upp og skuldin sett í innheimtu. Greiðsla vegna ágúst og september mánaðar ár hvert er á gjalddaga 1. september og eindagi þann 15 september.

Fullt dvalargjald er greitt fyrir þann tíma sem barnið er skráð í Skólaskjólið, þó barnið nýti ekki skráðan tíma vegna veikinda eða fría. Ef barn er fjarverandi samfellt í 2 vikur eða lengur vegna veikinda eða fría, fellur fæðiskostnaður niður. Foreldrar skulu tilkynna ef barn er fjarverandi vegna veikinda eða fría.

Skipulags- og námskeiðsdagar Skólaskjóls eru tveir á ári og er Skólaskjólið lokað þá daga. Skólaskjólið er lokað í vetrarleyfi skólans, á aðfangadag og gamlársdag.


 




Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 1 Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 2