Skólaþing 2011
Skólaþing verður haldið á Seltjarnarnesi 2. mars 2011. Skólaþingið er vettvangur fyrir bæjarbúa til að taka virkan þátt í endurmótun stefnu bæjarins fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla á Seltjarnarnesi.
Í tengslum við endurmótun skólastefnunnar er hér opinn hugmyndakassi, þar sem áhugasömum er boðið upp á að hafa áhrif á málefni skóla bæjarins.
Að Skólaþinginu loknu mun vinnuhópur vinna úr þeim hugmyndum og ábendingum sem skila sér í hugmyndakassann og gögnum frá Skólaþinginu til endurmótunar heildstæðrar skólastefnu fyrir Seltjarnarnesbæ.