Bygginga- og umhverfissvið
fer með skipulags- umhverfis- og byggingarmál
Sími: 5959 100 Fax: 5959 101
Afgreiðslutími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:45-16:00 og föstudaga 8:45-14:00
Staðsetning: Austurströnd 1
Bygginga- og umhverfissvið fer með umhverfis- og byggingarmál. Það hefur umsjón með öllum framkvæmdum á vegum bæjarins, byggingareftirlit, brunavörnum, viðhaldi á fasteignum bæjarins, gatna-, vatns- og fráveitukerfum, garðyrkju, vinnuskóla og umhverfismálum. Bygginga- og umhverfissvið fer einnig með málefni áhaldahúss, smábátahafnar og landsupplýsingakerfis.
Í afgreiðslu bæjarskrifstofu, Austurströnd 2 eru afgreiddar allar rafmagns- bygginga- og verkfræðiteikningar húsa í bænum. Þar liggja umsóknareyðublöð vegna byggingaframkvæmda og uppáskrifta iðnmeistara og móttekin gögn til byggingarfulltrúa og byggingar- og skipulagsnefndar.
