Félagsstarf - Dagskrá
Félags- og tómstundadagskrá eldri bæjarbúa í maí 2012
Fimmtudagur 17. maí kl. 14.00.
Uppstigningardagur. Dagur aldraðra. Helgistund í kirkjunni.
Fimmtudagur 17. maí kl. 16.00.
Opnun handavinnusýningar í salnum Skólabraut.
Sýning á handverki og vinnu eldri borgara á Seltjarnarnesi.
Sýningin er opin föstudaginn 18. maí og laugardaginn 19. maí kl. 14.00-18.00. Vöfflur og kaffi.
Fimmtudagur 24. maí kl. 13.30
Bingó í salnum Skólabraut.
Söngur og önnur dagskrá helst að mestu leiti óbreytt út maí.
Jóga fellur niður þriðjudaginn 15. maí og föstudaginn 18. maí vegna handavinnusýningar. Jóga fellur einnig niður þriðjudaginn 29. maí og föstudaginn 1. júní.
VETRARDAGSKRÁIN HELDUR SÉR AÐ MESTU LEYTI ÚT MAÍ.
SUMARDAGSKRÁIN VERÐUR GEFIN ÚT Í BYRJUN JÚNÍ.
SUMARFERÐ
SUMARFERÐIN ER FYRIRHUGUÐ ÞRIÐJUDAGINN 19. JÚNÍ.
LAGT AF STAÐ MEÐ RÚTU FRÁ FÉLAGSAÐSTÖÐUNNI SKÓLABRAUT KL. 9.30.
FARIÐ MEÐ HERJÓLFI FRÁ LANDEYJAHÖFN KL. 13.00. ÞEGAR KOMIÐ ER TIL EYJA VERÐUR TEKIÐ Á MÓTI HÓPNUM. FYRSTI VIÐKOMUSTAÐUR ER KAFFI KRÓ, ÞAR VERÐUR BOÐIÐ UPPÁ SÚPU, BRAUÐ OG KAFFI. KVIKMYND FRÁ GOSINU 1973 VERÐUR SÝND.
KL. 15.30. BÁTSFERÐ UMHVERFIS HEIMAEY MEÐ LEIÐSÖGN.
KL. 17.00. RÚTUFERÐ UM EYJUNA MEÐ LEIÐSÖGN.
KL. 18.00. MATUR Á KAFFI KRÓ.
Súpa, lasagnja með kartöflumús og salati. Kaffi á eftir.
FARIÐ MEÐ HERJÓLFI FRÁ VESTMANNAEYJUM KL. 20.30.
ÁÆTLUÐ HEIMKOMA UM MIÐNÆTTI.
SKRÁNINGARBLAÐ Á SKÓLABRAUT OG EIÐISMÝRI.
SKRÁNING EINNIG Í SÍMA 8939800 / 5959147.
VERÐ KR. 15.500.-
Mikil og góð þátttaka var í dagskránni hjá eldri bæjarbúum í desember. Ýmislegt var í boði í nokkuð fjölbreyttri dagskrá. Vel sótt jólahlaðborð með góðum mat og skemmtun, aðventukvöld í kirkjunni þar sem eldri borgarar sungu, Selkórinn bauð í söng og súkkulaði, krakkar úr Tónlistarskólanum komu við á Skólabrautinni og spiluðu, upplesturúr jólabókunum og boðið var upp á tónleika með lögum Oddgeirs Kristjánssonar.
Dagskrá starfsins fyrir næstu mánuði er komin út og hefur verið send til allra Seltirninga 67 ára og eldri. Félags og tómstundasviðið hvetur alla eldri bæjarbúa Seltjarnarness að kynna sér dagskrána og vonandi finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin er aðgengileg og uppsett fyrir hvern vikudag fyrir sig. Einnig eru þar inni dagsetningar á uppákomum og öðrum dagskrárliðum sem eldri borgarar eru hvattir til að kynna sér, eins og hjá kirkjunni, Bókasafninu, Félagsmiðstöðinni Selinu og Tónlistarskólanum ásamt fjölbreyttu sjálfsprottnu starfi hjá körlum. Framundan eru skemmtilegir tímar og viljum við endilega sjá fleira fólk og ný andlit og ef einhverjir luma á góðum hugmyndum sem nýst gætu í starfinu er það ekki verra.
Helstu breytingar frá fyrri dagskrá:
Helgistund á Skólabraut verður annan og fjórða þriðjudag í mánuði kl. 13.30. Botsía í Íþróttahúsinu er kl. 10.30 á miðvikudögum.
Félagsvistin og bingóið byrja kl. 13.30.
Óvissuferðir verða framvegis annanhvern mánuð.
Næsta „óvissuferð“ er 26. Janúar og verður Útvarpshúsið við Efstaleiti heimsótt. Síðasti skráningardagur 23 jan.
Nú kemur Selið inn með sína dagskrá miðvikudagskvöldum einu sinni í mánuði, en þeirra dagskrá hefur að mestu legið niðri vegna húsnæðisviðgerða.
Jóga- leikfimi er byrjuð aftur eftir nokkurt hlé, en tímarnir eru alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11.00. Það er engin skráning, bara að mæta. Sama á við kaffisamveruna í króknum alla morgna kl. 10.30, handavinnuna mánudaga og miðvikudaga kl. 13.00 og söngstundina alla föstudaga kl. 14.00, félagsvistina og bingóið. Þessir ofangreindu dagskrárliðir eru allir í húsnæði félagsstarfsins sem hefur aðsetur að Skólabraut 3-5. Þessa dagana stendur yfir skráning í leir, gler og glerbræðslu. Einnig viljum við kanna áhuga fólks á bókbandi og sögunámskeiðum. Þeir sem áhuga hafa láti vita í símanúmer uppgefin hér að neðan.
Öll námskeið og dagskrárliðir aðrir en þeir sem fylgja vordagskránni verða auglýsir sérstaklega og upplýsingum um þá komið á framfæri í Nesfréttum, Morgunblaðinu, heimasíðu bæjarins og öðrum auglýsingum. Einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar í síma 8939800/5959147 eða senda tölvupóst á kristinh@nesid.is.
Félags og tómstundasvið eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi óskar ykkur öllum gleðilegs árs.
Föst dagskrá
Mánudagar:
- Gler Mýrarhúsaskóla kl. 09:00
- Leir Skólabraut kl. 09:00
- Karlar/billjard, píla, tafl í Selinu kl. 10:00
- Kaffispjall í Króknum kl. 10:30
- Íþróttahús- hreyfing kl. 11:20
- Alm. handavinna Skólabraut kl. 13:00
- Vatnsleikfimi í Sundlaug kl. 18:30
Þriðjudagar:
- Vatnsleikfimi í Sundlaug kl. 07:15
- Gler Mýrarhúsaskóla kl. 09:00
- Kaffispjall í Króknum kl. 10:30
- Jóga í salnum Skólabraut kl. 11:00
- Helgistund og hádegisverður í kirkjunni fyrsta þriðjud. í mán. kl. 11.00
- Helgistund á Skólabraut annan og fjórða þriðjudag í mánuði kl. 13.30
10. og 24. jan./14. og 28. feb. 13. og 27. mars /10. og 24. apríl, 8. og 22. maí - Málun/ teiknun í Valhúsaskóla kl. 17:00
Miðvikudagar:
- Gler Mýrarhúsaskóla kl. 09:00
- Leir/Mósaík Skólabraut kl. 09:00
- Botsía íþróttahús kl. 10:00
- Kaffispjall í Króknum kl. 10:30
- Kyrrðarstrund í kirkjunni kr. 12:00
- Alm. handavinna Skólabraut kl. 13:00
- Vatnsleikfimi Sundlaug kl. 18:30
Fimmtudagar.
- Vatnsleikfimi í Sundlaug kl. 07:15
- Gler Mýrarhúsaskóla kl. 09:00
- Karlar/billjard, píla, tafl í Selinu kl. 10:00
- Kaffispjall í Króknum kl. 10:30
- Fyrsta fimmtud í mánuði: Félagsvist kl. 13:30
5. jan./ 2. feb./ 1. mars/ 12. apríl/ 3. maí - Annan fimmtudag í mánuði: Samvera eða óvæntar uppákomur kl. 14:00
12. jan./9. feb./ 8. mars /10. maí - Þriðja fimmtudag í mánuði: Bingó kl. 14:00
19. jan./16. feb. /15. mars/26. apríl/24. maí
Föstudagar:
- Kaffispjall í Króknum kl. 10:30
- Jóga í salnum Skólabraut kl. 11:00
- Spilað í Króknum kl. 13:30
- Syngjum saman kl. 14:00
Friðrik og Inga Björg
SELIÐ/ FÉLAGSMIÐSTÖÐ
Síðasta miðvikudagskvöld í mánuði er samverukvöld yngri og eldri.
Alltaf einhverjar skemmtilegar uppákomur. Spjall, tónlist, dans. kl. 20.00
SELTJARNARNESKIRKJA
Fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 11:00 Helgistund og hádegisverður
Kyrrðarstund alla miðvikudaga kl. 12:00
Þorragleði 7. febrúar í safnaðarheimili kirkjunnar
Ræðumaður Guðni Ágústsson kl. 11.00
Páskabingó 2. apríl kl. 19.30 í safnaðarheimili kirkjunnar
Vortónleikar Tónlistarskólans laugardaginn 21. apríl. kl. 13.00/14.30/16.00
TÓNLISTARSKÓLI SELTJARNARNESS
Tónleikar: Miðvikud 1.feb. og 21. mars kl.18.00
Opið hús, tónlist og kaffi laugard. 18. febrúar
BÓKASAFN SELTJARNARNESS
Fyrsta mánudag í mánuði. Te og tónlist. kl. 17:30
Fyrsta þriðjudag í mánuði. Prjónakaffi og lestur. kl. 19:30
SAMVERUSTUNDIR KARLA
Safnaðarheimili kirkjunnar. Þriðjudaga og fimmtudaga. kl. 14:00
Timburmenn: í Valhúsaskóla. Miðvikudaga. kl. 15:00
Bragðlaukarnir: Annan þriðjudag í mánuði.
Annan þriðjudag í mánuði.
Upplýsingar gefur Haukur Björnsson í síma 8918840
Dagskrá hvers dags birtist í dagbók Morgunblaðsins undir „félagsstarf eldri borgara“. Öll aukanámskeið og aðrar uppákomur fyrir utan fasta dagskrárliði munum við auglýsa í Nes-fréttum ásamt því að hengja upp auglýsingar á Skólabraut, Eiðismýri, Heilsugæslustöðinni, Bókasafninu og heimasíðu bæjarins seltjarnarnes.is
Leiðbeinendur:
Leir og handavinna. Ragna Ingimundardóttir
Gler. Ingibjörg Hjartardóttir
Umsjón Kristín Hannesdóttir. kristinh@nesid.is. Sími 893-9800/595-9147
Perma hársnyrtistofa. Tímapantanir í síma 5611160 / 5611162
Fótaaðgerðastofa Austurströnd 8. Tímapantanir í síma 5528833
