Lækningaminjasafn Íslands
SAFNANÓTT Í NESI – 12. FEBRÚAR KL. 19:00 - 24:00
Dagskrá:
19:30 Félagar úr Selkórnum syngja í Nesstofu
20:00 Sýning á myndbandi um gamla framleiðsluhætti í apótekum hefst í Lyfjafræðisafni
20:45 Leiðsögn um Nesstofu – Saga Nesstofu og starfsemi Lækningaminjasafn í Nesi
22:00 Sýning á myndbandi um gamla framleiðsluhætti í apótekum hefst í Lyfjafræðisafni
Auk þess:
Nesstofa Sérfræðingur á staðnum svarar spurningum gesta
Stutt mynd um Nes og Lækningaminjasafnið
Safnanætuleikur
Léttur athyglisleikur fyrir börn á öllum aldri
Lyfjafræðisafnið Lyfjafræðingar verða á staðnum og spjalla við gesti
Aðgangur er ókeypis – Verið velkomin í Nes á safnanótt!
Nánari upplýsingar um safnanótt. Sjá: www.safnanott.is
NESSTOFA
Nesstofa var byggð á árunum 1761 – 1763 sem embættisbústaður landlæknis. Hún er ein af elstu steinhúsum landsins og er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Nesstofa sem er í umsjá Lækningaminjasafns mun opna í sumar eftir gagngerar endurbætur og á næstu tveimur árum verða byggðar þar upp sýning um líf og lækningar í Nesi á tímabilinu 1760 til 1834.
Gestum gefst kostur á að kynna sér byggingarsögu Nesstofu í samhengi við önnur steinhús í landinu. Athyglinni er einnig beint að viðgerðum á Nesstofu sem fóru fram í tveimur áföngum á vegum Þjóðminjasafns og Húsafriðunarnefndar og undir stjórn Þorsteins Gunnarssonar arkitekts. Lækningaminjasafn og Þjóðminjasafn hafa í sameiningu unnið leiðsögubækling um Nesstofu og er hægt að nálgast hann hér á íslensku og hér á ensku.
Nesstofa á Seltjarnarnesi (bæklingur á íslenskur)
536 kb
Nesstofa on Seltjarnarnes (bæklingur á enskur)
532 kb
Einnig verður kynning á starfsemi Lækningaminjasafns Íslands og forsögu þess og á nýju safnhúsi sem nú er að rísa í Nesi eftir verðlaunateikningu Yrki arkitekta.
Boðið er upp á leiðsagnir fyrir hópa um Nesstofu. Nánari upplýsingar i síma 595 9100 eða á netfanginu annath@seltjarnarnes.is
LÆKNINGAMINJASAFN ÍSLANDS Í NESI
Hlutverk Lækningaminjasafns Íslands er að varðveita og safna lækningaminjum og stuðla að rannsóknum og miðlun á heilbrigðissögu. Í sögu lækninga rennur saga vísinda og tækni saman við sögu þjóðar og þeirra lífskjara sem hún hefur búið við. Lækningaminjar varpa ljósi á þessa sögu og í sýningum Lækningaminjasafns verður gerð grein fyrir henni á fjölbreyttan hátt. Í fyllingu tímans mun starfsemi safnsins flytja í nýtt húsnæði sem verið er að reisa við hlið Nesstofu í Nesi við Seltjörn.
Lyfjafræðisafnið er einnig staðsett á safnasvæði Seltirninga í Nesi.
