Seltjarnarnesbær

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

Lækningaminjasafn

Lækningaminjasafn Íslands

3. SEPTEMBER 2010 ÞESSI SÍÐA ER EKKI UPPFÆRÐ. UNNIÐ ER AÐ UPPSETNINGU NÝRRAR HEIMASÍÐU LÆKNINGAMINJASAFNS ÍSLANDS. NÝJA SÍÐAN VERÐUR FLJÓTLEGA AÐGENGILEG Á SLÓÐINNINI http://www.laekningaminjasafn.is/


Nesstofa og Lyfjafræðisafnið eru lokuð yfir vetrartímann.

Tekið á móti hópum samkvæmt samkomulagi. Nánari upplýsingar í síma 595 9100 og á netfanginu laekningaminjasafn@seltjarnarnes.is

 

Sýning í Nesstofu um niðurstöður fornleifarannsókna

Í Nesstofu stendur yfir sýning Saga og Framtíð. Fornleifarannsóknir á Vestursvæðum. Þar er hægt að fræðast um niðurstöður fornleifarannsókna undanfarinna ára. Skoða gripi sem hafa legið í jörðu í hundruð ára og ganga um leifar síðasta torfbæjarins í Nesi.

 

Margt að sjá og skoða

Vissir þú að bæjarhóllinn er ekki náttúrulegur heldur manngerður? Vissir þú að kirkja heilags Nikulásar stóð í Nesi í 600 ár? Hefurðu heyrt um hringina dularfullu í Nestúninu sem saman mynda eitt stærsta rústasvæði landsins frá landnámsöld? Viltu ganga á einu elsta timburgólfi landsins? Hefurðu hitt lóurnar í Nesi? Viltu læra að búa til pillur í Lyfjafræðisafninu?

 

Urtagarður

 22. ágúst opnaði Urtagarður í Nesi. Í Urtagarðinum er hægt að skoða lækningaplöntur og fræðast um virkni þeirra. Nánari upplýsingar koma síðar


NESSTOFA

Nesstofa var byggð á árunum 1761 – 1767 sem embættisbústaður landlæknis. Hún er ein af elstu steinhúsum landsins og er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Nesstofa sem er í umsjá Lækningaminjasafns mun opna í sumar eftir gagngerar endurbætur og á næstu tveimur árum verða byggðar þar upp sýning um líf og lækningar í Nesi á tímabilinu 1760 til 1834.

Gestum gefst kostur á að kynna sér byggingarsögu Nesstofu í samhengi við önnur steinhús í landinu. Athyglinni er einnig beint að viðgerðum á Nesstofu sem fóru fram í tveimur áföngum á vegum Þjóðminjasafns og Húsafriðunarnefndar og undir stjórn Þorsteins Gunnarssonar arkitekts.  Lækningaminjasafn og Þjóðminjasafn hafa í sameiningu unnið leiðsögubækling um Nesstofu og er hægt að nálgast hann hér á íslensku og hér á ensku.

Nesstofa á Seltjarnarnesi (bæklingur á íslenskur) Pdf skjal 536 kb

Nesstofa on Seltjarnarnes (bæklingur á enskur) Pdf skjal 532 kb

Einnig verður kynning á starfsemi Lækningaminjasafns Íslands og forsögu þess og á nýju safnhúsi sem nú er að rísa í Nesi eftir verðlaunateikningu Yrki arkitekta.

 

Boðið er upp á leiðsagnir fyrir hópa um Nesstofu. Nánari upplýsingar i síma 595 9100 eða á netfanginu laekningaminjasafn@seltjarnarnes.is

  

LÆKNINGAMINJASAFN ÍSLANDS Í NESI

Hlutverk Lækningaminjasafns Íslands er að varðveita og safna lækningaminjum og  stuðla að rannsóknum og miðlun á heilbrigðissögu. Í sögu lækninga rennur saga vísinda og tækni saman við sögu þjóðar og þeirra lífskjara sem hún hefur búið við. Lækningaminjar varpa ljósi á þessa sögu og í sýningum Lækningaminjasafns verður gerð grein fyrir henni á fjölbreyttan hátt. Í fyllingu tímans mun starfsemi safnsins flytja í nýtt húsnæði sem verið er að reisa við hlið Nesstofu í Nesi við Seltjörn.

Lyfjafræðisafnið er einnig staðsett á safnasvæði Seltirninga í Nesi.

Senda grein


Þjónusta


Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 1 Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 2

Þetta vefsvæði byggir á Eplica