Menningarhátíð Seltjarnarness 8. til 10. júní 2007
Yfirlit
Dagskrá Menningarhátíðar Seltjarnarness 2007
252kb.
Dagskrá birtist í heild sinni hér fyrir neðan.
Ágætu Seltirningar
Það er með stolti og gleði sem menningarnefnd kynnir Menningarhátíð Seltjarnarness 2007.
Að þessu sinni er leiðarstef hátíðarinnar ,,fortíð mætir framtíð” og ber þar hæst sýningu ljósmynda úr fórum bræðranna Sigurðar og Ólafs Péturssona sem fengið hefur nafnið Systir með sjóhatt. Ljósmyndirnar eru ómetanleg heimild um daglegt líf á fyrri hluta síðustu aldar.
Sjósókn er órjúfanlegur þáttur sögu Seltjarnarness en minnt verður á þá sögu með ýmsum hætti á hátíðinni meðal annars í sameiginlegum morgunverði Seltirninga á Eiðistorgi og á Fjörutónleikum.
Æska bæjarins kemur víða að menningarhátíð og eru bæjarbúar hvattir til að láta ekki listsköpun ungu kynslóðarinnar framhjá sér fara.
Hátíð sem þessi krefst mikils undirbúnings. Einstakt hefur verið að upplifa þann jákvæða anda sem mætt hefur skipuleggjendum hvarvetna í bæjarfélaginu. Menningarnefnd þakkar heilshugar öllum sem lagt hafa hönd á plóginn til að gera hátíðina jafn glæsilega og raun ber vitni.
Góða skemmtun!
Fyrir hönd menningarnefndar Seltjarnarness
Sólveig Pálsdóttir formaður
Föstudagur 8. júní
15:00-16:00 Bókasafn Seltjarnarness
Setning Menningarhátíðar Seltjarnarness 2007
15:00 Bókasafn Seltjarnarness
Setning Menningarhátíðar Seltjarnarness í aðalsal og opnun listasýningar nemenda leikskólanna Mánabrekku og Sólbrekku. Handverkssýning eldri Seltirninga verður einnig í gangi og munir úr eigu Alberts vitavarðar í Gróttuvita verða til sýnis.
Þá er ljósmyndasýningin Systir með sjóhatt aðalsmerki hátíðarinnar en sýningin samanstendur af myndum úr safni Ólafs og Sigurðar Péturssona. Sýnd verður kvikmynd Valdimars Leifssonar Seltjarnarnesið þá og nú um þá bræður Ólaf og Sigurð.
Sólveig Pálsdóttir formaður menningarnefndar ávarpar gesti. Nemendur Mánabrekku syngja nokkur lög. Jóhann Helgason bæjarlistamaður Seltjarnarness 2007 flytur lag sitt Seltjarnarnesið.
Allir velkomnir.
16:00-18:00 Mýrarhúsaskóli
16:00-16:50 Leiklist. Nemendur Mýrarhúsaskóla flytja örverk um börn í sal skólans. Verkin nefnast; Framtíðin, Í álögum, Týnd og Framboð og fjölmiðlar. Höfundur og leikstjóri er Ásgeir Sigurvaldason.
17:00-17:15 Írsk þjóðlagatónlist flutt af nemendum Tónlistarskóla Seltjarnarness undir stjórn Ólafar Maríu Ingólfsdóttur og Sigríðar Friðjónsdóttur.
16:00-18:00 Sýning á þemavinnu nemenda 1.-6. bekkjar Dýr í útrýmingarhættu. Kvikmyndasýning, sýndar verða þrjár kvikmyndir teknar af Snæbirni Ásgeirssyni.
Eftirtaldar myndir verða sýndar; 100 ára afmæli Mýrarhúsaskóla árið 1975, Björgunarsveitin Albert í leik og starfi og 17. júní á Seltjarnarnesi 1971-1984. Kvikmyndirnar eru í eigu Snæbjarnar Ásgeirssonar.
Laugardagur 9. júní
10:00-12:00 Eiðistorg
10:00 Síld eða sulta? Nesskip og menningarnefnd Seltjarnarness bjóða bæjarbúum til morgunverðar á Eiðistorgi.
Auk morgunverðargesta sjá Jón Þórisson leikmyndahöfundur, hljómsveitin 6íJazz, Ballettskóli Guðbjargar Björgvinsdóttir og danshópur Jóa um að skapa útgerðarstemmningu.
10:00-14:00 Bókasafn Seltjarnarness
Ljósmyndasýningin Systir með sjóhatt, sýning á handverkum eldri Seltirninga, munir Alberts vitavarðar og listasýning nemenda leikskólanna Mánabrekku og Sólbrekku.
12:00-14:00 Valhúsaskóli við Skólabraut
12:00-14:00 Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness kynnir kíkinn og starfsemi félagsins.
14:00-15:00 Sundlaug Seltjarnarness
Gjaldfrjálst í laugina á milli kl. 13 og 15. Fullklæddum gestum velkomið að njóta dagskrár á bökkum laugarinnar.
14:00-15:00 Skólalúðrasveit Seltjarnarness leikur fyrir sundi undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar.
14:20-14:30 Halldór Bergmann og fylgifiskar kenna Müllers æfingar.
14:30-14:40 Leiklistarfélag Seltjarnarness verður með gjörning.
14:00-16:00 Félagsmiðstöðin Selið
Opið hús. Kynning á starfsemi Selsins.
15:00-19:00 Gaujabúð í Bakkavör
Opið hús hjá slysavarnadeildinni Vörðunni og Björgunarsveitinni Ársæli. Boðið verður upp á siglingu, kassaklifur, hjálma- og hjólaskoðun ásamt kynningu á unglingastarfi.
15:00-18:00 Vinnustofur listamanna
Vinnustofur listamanna verð opnar víðsvegar um Nesið.
16:00-19:00 Fjörutónleikar í Bakkavör
Fjörutónleikar fyrir utan Gaujabúð. Fram koma hljómsveitirnar; Blackout, Neighbours, Benni Hemm Hemm, Bertel, Fortuna, Shogun og <3 Svanhvít.
Opið hús hjá slysavarnadeildinni Vörðunni og Björgunarsveitinni Ársæli í Gaujabúð. Veitingasala á tónleikasvæði.
18:30-02:00 Félagsheimili Seltjarnarness
Listaklúbburinn Nescafé stendur fyrir fögnuði.
Kl. 19:00 kvöldverður framreiddur. Kl. 21:00 hefjast tónleikar Jazztríó Sunnu Gunnlaugsásamt óvæntri upphitun. Aðgangseyrir með jözzuðum kvöldverði kr. 3500.- Án kvöldverðar kr. 1000.-
Borða- og miðapantanir í síma 561 2031.
Sunnudagur 10. júní
11:00-12:00 Seltjarnarneskirkja
11:00 Listamessa. Leiklistarfélag Seltjarnarness ásamt Sr. Örnu Grétarsdóttur með gjörninginn Lífshlaupið undir handleiðslu Bjarna Ingvarssonar. Tónlist: Guðni Franzson.
14:00-15:00 Skólabraut félagsrými
Vor- og sumarljóðadagskrá Leiklistarfélags Seltjarnarness ásamt fjölbreytilegum tónlistaratriðum.
15:00-18:00 Vinnustofur listamanna
Vinnustofur listamanna verða opnar víðsvegar um Nesið.
20:30-23:00 Félagsheimili Seltjarnarness
21:00 Popplög í VG dúr. Valgeir Guðjónsson og Jón Ólafsson skipa fámennasta sextett landsins.
Aðgangseyrir kr. 500.- Snarl og drykkir í veitingasölu.
Bestu þakkir fær Blómastofan Eiðistorgi.
Ljóð undir sjóhatti heitir Grótta. Höfundur Sigurbjörg Þrastardóttir.
Ókeypis aðgangur á alla viðburði nema annað sé tekið fram.
Vinnustofur listamanna verða opnar laugardaginn 9. júní og sunnudaginn 10. júní kl. 15:00-18:00
Listamenn við horn Nesvegar og Suðurstrandar (Bónushús)
Rúna Gísladóttir myndlistarkona og bæjarlistamaður 2000
Guðrún Einarsdóttir listmálari og bæjarlistamaður 1999
Sigrún Lýðsdóttir videolistamaður
Tom Goulden myndlistarmaður
Magnús Leifsson grafískur hönnuður
Ingibjörg Hjartardóttir glerlistakona
Kristján Steingrímur myndlistarmaður Kirkjubraut 7
Ragna Ingimundardóttir leirlistakona og bæjarlistamaður1998
Nesvegi 109
Messíana Tómasdóttir myndlistarkona og bæjarlistamaður 2001 Vesturströnd 2
Gerður Guðmundsdóttir myndlistarkona Unnarbraut 18
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona Unnarbraut 20
Aðeins opin á sunnudeginum 10. júní.
Sigurður Árnason myndlistarmaður Miðbraut 12
Ásdís Kalman myndlistarkona Miðbraut 18
Björg Ísaksdóttir listamaður Austurströnd 10
Vinnustofa Tolla Austurströnd 5
Þórhildur Jónsdóttir grafískur hönnuður Austurströnd 3
Í tilefni menningarhátíðar verður Rúna Gísladóttir, myndlistarkona og bæjarlistamaður árið 2000, með brúðusýningu 11. og 12. júní, kl. 16:00-20:00að Látraströnd 7.
