Seltjarnarnesbær

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

Nesstofa

Nesstofa við Seltjörn

NesstofaNesstofa er fyrsti íslenski landlæknisbústaðurinn, hlaðin úr tilhöggnu grjóti á árunum 1761-1763 eftir teikningu danska hirðarkitektsins Jacob Fortling. Í Nesstofu hófst opinber lyfsala árið 1772 og þar starfaði einnig ljósmóðir.

Húsið komst í einkaeign þegar embættin tvö voru flutt til Reykjavíkur upp úr 1830 en hefur verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá 1979.

Í nóvember 2003 gerði Seltjarnarnesbær samning við Þjóðminjasafn Íslands um rekstur Nesstofu. Samkvæmt samningi bæjarins og Þjóðminjasafnsins skal Seltjarnarnesbær sjá um umsjón, viðhald og rekstur Nesstofu.

Unnið er að umfangsmiklum endurbótum á Nesstofu sem mun ljúka á árinu 2008. Frekari upplýsingar um Nesstofu veitir Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir safnstjóri Lækningaminjasafns Íslands í síma 595 9100 eða á netfanginu annath@seltjarnarnes.is




Þjónusta


Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 1 Gott aðgengi fatlaðra, forgangur 2

Þetta vefsvæði byggir á Eplica