Fara í efni

Leikskóli Seltjarnarness

Leikskóli Seltjarnarness er fyrir nemendur frá öðru aldursári til sex ára en miðað er við að öll börn á Seltjarnarnesi komist í leikskóla að hausti á því ári sem þau verða tveggja ára.

Leikskólastjóri: Margét Gísladóttir
Aðstoðaleikskólastjórar: Linda Björg Birgisdóttir og Sonja Jónasdóttir

Leikskóli Seltjarnarness starfar á fjórum starfstöðvum: Mánabrekku, Sólbrekku og Fögrubrekku sem standa á sömu lóð við Suðurströnd og leikskóladeildinni Holti í Seltjarnarneskirkju.

Í leikskólastarfinu er m.a. lögð áhersla á tónlist, myndlist, umhverfismennt og félagsfærni. Gott samstarf er á við Tónlistarskóla Seltjarnarness þaðan sem tónlistarkennari kemur einu sinni í viku auk þess sem leikskólinn á í samstarfi við Bókasafn Seltjarnarness og Íþróttafélagið Gróttu.

Opnunar- og dvalartími

  • Leikskólinn er opinn alla virka daga frá kl. 7:45 - 16:30.
  • Boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma 4 - 8,5 klst. Hámarksdvöl er 8,5 klst. á dag.
  • Skólinn lokar í 6 daga á ári vegna skipulags- og námskeiðsdaga starfsfólks
  • Sumarleyfi eru 20 dagar á ári (4 vikur í júlí) og lokar leikskólinn á þeim tíma.
  • Lokað er á aðfangadag og gamlársdag. 

Innritun í leikskóla 

  • Sækja þarf um leikskóladvöl á mínar síður fyrir 1. mars árið sem leikskóladvöl á að hefjast.
  • Barni er úthlutað leikskóladvöl eftir aldri þess (kennitölu).
  • Boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma frá 4 - 8,5 klst. á dag.
  • Þegar barn byrjar leikskólagöngu sína undirrita foreldrar sérstakan dvalarsamning.
  • Dvalarsamningur tekur mið af innritunarreglum í leikskóla Seltjarnarness.

Leikskólagjöld

  • Leikskólagjöld fylgja gjaldskrá Seltjarnarnesbæjar og eru auglýst á heimasíðu bæjarins.
  • Gjöldin eru innheimt með gíróseðli, í banka eða með greiðslu VISA og EURO.
  • Greiða skal fyrir 15. hvers mánaðar.
  • Dvalartími barns í leikskólanum og hjúskaparstaða foreldra ákvarðar heildargjaldið.
  • Veittur er systkinaafsláttur samanber gjaldskrá bæjarins.
  • Börn einstæðra foreldra og námsmanna greiða lægra gjald.
  • Einu sinni á ári ber einstæðum foreldrum að framvísa vottorði um hjúskaparstöðu.
  • Námsmenn skulu framvísa staðfestingu um skólavist fyrir hverja önn.
  • Lækkun á gjaldi kemur til framkvæmdar fyrsta dag næsta mánaðar eftir að staðfestingu/vottorði er skilað.
  • Ef barn er fjarverandi samfellt í 2 vikur eða lengur, vegna veikinda eða fría, geta foreldrar sótt um niðurfellingu fæðiskostnaðar.
  • Leikskólagjald fellur niður í 4 vikur á sumrin v/sumarleyfa.

Uppsagnarfrestur

  • Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.
  • Skuldi foreldrar 3 mánuði er barninu sagt upp leikskóladvölinni.

Framlenging á leikskóladvöl

  • Flytji barn úr bæjarfélaginu er hægt að sækja um framlengingu á leikskóladvöl samkvæmt sérstöku samkomulagi á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
  • Barni er heimilt að vera áfram í leikskóla í því bæjarfélagi sem flutt er úr, í allt að 6 mánuði frá flutningi lögheimilis, sækja skal um það sérstaklega.
  • Sé barn á lokaári í leikskóla eða með frávik í þroska/fötlun geta tímamörk verið rýmri.

Reglur um forgang að leikskóla

  • Seltjarnarnesbær áskilur sér rétt til að forgangsraða börnum í leikskóla þegar taka þarf tillit til sérstakra aðstæðna barna og/eða foreldra.
  • Börn geta fengið forgang, skv. úrskurði fræðslustjóra, vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna/erfiðleika sem ætla megi að hafi áhrif á velferð barnsins.
  • Beiðni um forgang þarf að fylgja bréf frá félagsráðgjafa, lækni eða öðrum eftir því sem við á.
  • Börn starfsfólks Leikskóla Seltjarnarness hafa forgang að plássi við leikskólann að því gefnu að öðrum skilyrðum inntöku sé fullnægt.
Síðast uppfært 04. mars 2024
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?