Áhaldahús
Áhaldahús Seltjarnarness annast viðhald gatna og samgangnakerfis bæjarins. Áhaldahús annast einnig viðhald á veitum bæjarins, þ.e. vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu.
Áhaldahús annast viðhald á húsnæði á vegum bæjarins ásamt því að sjá um hálkuvarnir og snjómokstur á götum og göngustígum innan samgangnakerfisins. Starfsmenn áhaldahúss aðstoðar garðyrkjustjóra og vinnuskóla við viðhald, umhirðu og fegrun útivistarsvæða og lóða í umsjón bæjarfélagsins. Undir starfsemi Áhaldahúss fellur rekstur stærri tækja og bíla bæjarins.
Áhaldahús Seltjarnarnesss er staðsett að Austurströnd 1
