Aðalskipulag Seltjarnarness 2006 - 2024
Aðalskipulag er stefnuyfirlýsing bæjarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar innan bæjarfélagsins.
Aðalskipulag Seltjarnarness 2006-2024 var samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarness 22. febrúar 2006 og staðfest af umhverfisráðherra 16. maí 2006.
Skjöl með þessari táknmynd
er ekki aðgengilegt öllum notendum (til dæmis þeim sem nota skjálesara)
- Breyting á Aðalskipulagi Seltjarnarness 2006-2024, svæði fyrir þjónustustofnanir við Kirkjubraut.
- Aðalskipulag Seltjarnarness 2006-2024
8,1 mb - Aðalskipulag Seltjarnarness 2006-2024 Skipulagsuppdráttur
981 kb.
Við gerð Aðalskipulags Seltjarnarness var tekið mið tekið mið af niðurstöðum íbúaþingsins „NESIÐ í nýju ljósi“, sem haldið var í nóvember 2003. Jafnframt haft að leiðarljósi að hafa virkt samráði við íbúa. Umsjón með gerð aðalskipulags var í höndum ráðgjafafyrirtækisins Alta.
Hægt er að nálgast allar greinargerðir og áfangaskýrslur er varða aðalskipulag á vef bæjarins. Sjá skýrslur um skipulagsmál
